Forsvarsmenn Gauksstaða: „Súrt að tefjast vegna tæknilegra mistaka“
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur nýlega fellt úr gildi deiliskipulag Gauksstaða í Suðurnesjabæ vegna formgalla á ferlinu. Forsvarsmenn verkefnisins segja niðurstöðuna staðfesta gæði skipulagsins en harma að tæknileg atriði valdi töfum.
Í júní 2025 samþykkti bæjarráð Suðurnesjabæjar deiliskipulag fyrir ferðaþjónustu að Gauksstöðum. Þeirri ákvörðun var skotið til úrskurðarnefndar sem komst nýverið að þeirri niðurstöðu að ógilda bæri skipulagið. Ástæðan er sú að breytingar sem gerðar voru eftir auglýsingu þóttu þess eðlis að kynna hefði átt tillöguna að nýju, auk þess sem skort hafði á greinargerð umhverfismats í upphaflega ferlinu.
Allir kæruliðir kærenda féllu
Jón Steinar Konráðsson og Lárus Guðmundsson, forsvarsmenn uppbyggingarinnar á Gauksstöðum, segja niðurstöðuna í raun staðfesta að sjálft skipulagið sé traust. Í yfirlýsingu frá þeim kemur fram að nefndin hafi hafnað öllum efnislegum ákæruliðum kærenda.
„Við erum ánægðir með niðurstöður nefndarinnar sem snúa að ákæruliðum kærenda sem var öllum hafnað. Þá er ljóst að deiliskipulagið sem var staðfest af Skipulagsstofnun er í takt við gildandi aðalskipulag sveitarfélagsins og niðurstaða nefndarinnar undirstrikar að deiliskipulagið sjálft er gott og gilt.“
Treystu á leiðbeiningarskyldu sveitarfélagsins
Þrátt fyrir að vera ánægðir með efnislega niðurstöðu, telja þeir óheppilegt að nefndin grípi inn í vegna atriða sem ekki var deilt um í sjálfri kærunni. Samkvæmt úrskurðinum þarf að auglýsa tillöguna aftur óbreytta.
Jón og Lárus benda á að þeir hafi treyst ráðgjöf sveitarfélagsins í ferlinu:
„Við höfum persónulega ekki mikla reynslu í skipulagsmálum og höfum því treyst á sveitarfélagið sem ber leiðbeiningarskyldu í málum sem þessum. Það er því súrt að við þurfum að seinka ferlinu vegna tæknilegra mistaka sem gerð voru á fyrri stigum málsins.“
Stefna á opnun 2027
Þótt ógildingin hægi á ferlinu segja þeir að hún eyði jafnframt óvissu um lögmæti skipulagsins til framtíðar. Þeir munu ekki dvelja við baksýnisspegilinn heldur halda ótrauðir áfram með undirbúning.
„Við höldum áfram þeirri undirbúningsvinnu sem við höfum verið í varðandi uppbygginguna og hlökkum til þess að opna glæsilega ferðaþjónustu vorið 2027.“




