Fréttir

Farþegar mæti snemma vegna álags í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
mánudaginn 23. september 2019 kl. 06:27

Farþegar mæti snemma vegna álags í Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Fram til loka októbermánaðar, þegar sumartímabili lýkur, má búast við nokkru álagi í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli fyrir fyrstu brottfarir að morgni.

Farþegar sem eiga bókað flug milli kl. 07:00 og 09:00 eru hvattir til að mæta að minnsta kosti 2,5 klukkutíma fyrir brottför til að komast hjá aukinni bið í innritun og öryggisleit. Innritun og öryggisleit opnar kl. 04:00 alla morgna á Keflavíkurflugvelli.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ástæða þess að álag verður á þessu tímabili er að breyting hefur orðið á dreifingu ferða flugfélaga og hafa ferðir sem áður voru áætlaðar seinna um morguninn verið færðar í þennan fyrsta brottfararhluta dagsins.

Farþegar eru einnig hvattir til að kynna sér þær reglur sem gilda í öryggisleit og hvernig best sé að haga ferð sinni þar í gegn til þess að flýta fyrir.

Vökva er einungis heimilt að hafa meðferðis ef hver eining er 100 ml. eða minna og má heildarmagn ekki fara yfir 1 lítra.

Setja skal allan vökva sem er 100 ml. eða minna í glæran rennilásapoka og setja í bakka við öryggisleit.

Taka skal fartölvu og önnur stærri rafmagnstæki úr tösku og setja í bakka.

Nánari leiðbeiningar má finna hér.

Mætið tímanlega og njótið ferðarinnar.