Gróðurhús á Fitjum klædd myrkvunargluggatjöldum
Nú liggja fyrir áform m.a. um frekari uppbyggingu gagnavera og byggingu gróðurhúsa á atvinnusvæði Reykjanesbæjar sunnan við Fitjar, kallað AT12 í skipulagi. Miðað við þau áform þarf að auka verulega við byggingarheimildir. Gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir 198.284 fermetrum en auka þarf byggingarmagn í 283.500 fermetra.
Núverandi starfsemi á AT12 er fyrst og fremst gagnaver. Svæðið er utan áhrifasvæðis Keflavíkurflugvallar. Það er þó viðkvæmt fyrir notkun leysigeisla eða sambærilegra ljósa samkvæmt skipulagsreglum Keflavíkurflugvallar. Notast verður við myrkrunartjöld sem draga fyrir gróðurhúsin sem rísa á svæðinu til að draga úr neikvæðum áhrifum ljósmengunar. Hljóðmengun er ekki talin veruleg, segir í gögnum umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar.
Kynningu á tillögu að breytingu á aðalskipulagi fyrir reitinn er lokið. Umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt að senda skipulagið til Skipulagsstofnunar til endanlegrar afgreiðslu.
atNorth og hin stóru gagnaverin á Íslandi, Borealis Data Center og Verne Global fengu nýlega Upplýsingatækniverðlaun Ský - Skýrslutæknifélags Íslands 2025. Verðlaunin voru fyrir framlag þeirra til upplýsingatæknigeirans á Íslandi. Borealis og Verne eru einnig með starfsemi á Suðurnesjum. Verne Global á nokkuð langa sögu í starfsemi á Ásbrú í Reykjanesbæ en fyrirtækið hóf hana árið 2007 og hefur stækkað jafnt og þétt síðan.
atNorth er með viðamikla starfsemi á Fitjum en þar er fyrirtækið með tólf byggingar undir gagnaver og hyggur á enn frekari stækkun. Hér á landi rekur atNorth þrjú stór gagnaver, ICE01 í Hafnarfirði, ICE02 í Reykjanesbæ og ICE03 á Akureyri. atNorth er með starfsemi í fjórum af fimm Norðurlöndunum og hefur fjögur ný gagnaver í byggingu, tvö í Finnlandi og tvö í Danmörku.
Nýverið tilkynnti atNorth um 41,2 milljarða króna fjárfestingu í stækkun gagnavera á Íslandi en við bætist fjárfesting viðskiptavina fyrirtækisins í tölvubúnaði sem nemur nálægt 300 milljörðum króna. Um er að ræða umfangsmestu stækkun sem íslenskt gagnaver hefur ráðist í og innifelur umtalsvert magn af hátæknibúnaði. Leigja þurfti sérhæft flutningaskip til að flytja hluta búnaðarins og kallaður var til stærsti krani landsins til að hífa búnaðinn inn á lóð gagnaversins en þar kom fram að fyrirtækið væri að auglýsa eftir starfsfólki á Íslandi. Um fjörutíu manns starfa hjá því á Fitjum en síðan er annar eins fjöldi frá verktökum á Suðurnesjum en fyrirtækið auglýsti nýlega eftir starfsfólki.