Fréttir

Endurheimtin á Keflavíkurflugvelli hefur farið hægar af stað
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 4. október 2021 kl. 10:45

Endurheimtin á Keflavíkurflugvelli hefur farið hægar af stað

Má rekja beint til harðra takmarkana sóttvarnaryfirvalda á landamærum Íslands. Flugfélög hafa dregið úr framboði og flugfélögum fækkað sem ætluðu að fljúga í vetur 

„Enn gætir verulegra áhrifa kórónuveirunnar á rekstur flugvalla og flugleiðsöguþjónustu hjá okkur. Endurheimtin á Keflavíkurflugvelli hefur farið hægar af stað en við áttum von á. Ljóst er að fjöldi farþega á síðustu mánuðum þessa árs verður minni en við vonuðumst eftir og má rekja það beint til harðra takmarkana sóttvarnaryfirvalda á landamærum Íslands. Flugfélög hafa dregið úr framboði sínu og þeim flugfélögum, sem við töldum að myndu sinna flugi til Íslands yfir vetrarmánuðina, hefur fækkað og gæti þeim auðveldlega fækkað enn frekar. Þessi staða er mikið áhyggjuefni, og í raun alvarleg, þar sem við ættum að vera að vinna með endurheimtinni en ekki gegn henni,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Rekstrarafkoma af samstæðu Isavia fyrir fjármagnsliði og skatta (EBIT) á fyrri helmingi ársins 2021 var neikvæð um 5,1 milljarð króna samanborið við neikvæða rekstrarafkomu upp á 5,3 milljarða króna fyrir sama tímabili á síðasta ári. Áhrifa kórónuveirunnar gætti enn verulega á rekstur félagsins á fyrri hluta ársins og nam samdráttur í tekjum þess um 2,3 milljörðum króna, eða um 27% samanborið við sama tímabil á síðasta ári. Ef horft er til fyrri helmings árs 2019 í samanburði við fyrri helming árs 2021 nam tekjusamdrátturinn um 65% fyrir samstæðu Isavia en 83% ef eingöngu er horft er til reksturs móðurfélagsins sem sinnir rekstri Keflavíkurflugvallar. Miðað við fyrri helming ársins 2020 fóru 76% færri farþegar um Keflavíkurflugvöll en á sama tímabili á þessu ári. Ef bornir eru saman fyrri helmingar áranna 2019 og 2021 nemur samdrátturinn um 93%.

Gripið hefur verið til umfangsmikilla hagræðingaaðgerða í rekstri til að mæta tekjusamdrættinum en á sama tíma hefur verið lögð áhersla á að viðhalda grunnstarfsemi félagsins og innviðum þess í ljósi mikilvægis þeirra fyrir íslenskt efnahagslíf til framtíðar.

 Heildarafkoma tímabilsins var neikvæð um 3,5 milljarða króna samanborið við neikvæða afkomu um 7,6 milljarða króna fyrir sama tímabil í fyrra. Þann viðsnúning má rekja til jákvæðra gengisáhrifa vegna langtímalána í erlendum gjaldmiðlum.

 Þrátt fyrir óvissu í vetur hefur Isavia hafið að nýju framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli í samræmi við uppbyggingaráætlun félagsins:

 „Ákvörðun um að auka hlutafé í Isavia fyrr á árinu gerði okkur mögulegt að hefjast handa við uppbygginguna á Keflavíkurflugvelli og stuðla þannig áfram að endurreisn ferðaþjónustunnar. Frekari uppbygging, og þá ekki síst þegar kemur að tengistöðinni á Keflavíkurflugvelli, styður við fjölgun öflugra flugtenginga en þær eru ein af lykilforsendum lífsgæða á Íslandi,” segir Sveinbjörn.