Vinna deiliskipulag fyrir öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli
Utanríkisráðuneytið hefur falið Landhelgisgæslu Íslands að vinna deiliskipulag fyrir öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli. Skipulagið er komið í auglýsingu.
Deiliskipulagssvæðið er um 760 ha að stærð og afmarkast samkvæmt auglýsingu nr. 720/2015 um landfræðileg mörk öryggis og varnarsvæða. Svæðið liggur að landsvæðum sem eru innan sveitarfélagamarka Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar. Mörk meginsvæðis til austurs og að hluta til suðurs eru að landi innan Reykjanesbæjar, til norðurs að svæði Isavia (svæði A) á Keflavíkurflugvelli og til vesturs og suðurs að landi innan Suðurnesjabæjar.
Deiliskipulagstillagan fjallar m.a. um afmörkun nýrra svæða fyrir starfsemi innan svæðisins s.s. svæði fyrir skammtíma gisti aðstöðu, efnisvinnslusvæði, gistisvæði, geymslusvæði og aðra landnotkun og starfsemi.
Hér má finna gögn sem tengjast deiluskipulagstillögunni.