Fréttir

Áhöfn Baldurs losaði dauðan hval sem festist í botnföstu tógi á Stakksfirði
Fimmtudagur 26. janúar 2023 kl. 14:43

Áhöfn Baldurs losaði dauðan hval sem festist í botnföstu tógi á Stakksfirði

Áhöfn sjómælingaskipsins Baldurs losaði dauðan hval á Stakksfirði í gær sem flækst hafði í botnföstu tógi sem talið er líklegt að sé hluti af kræklingaræktunarbúnaði. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning um hvalinn fyrr í vikunni.

Hræið var orðið uppblásið og gat valdið hættu fyrir sjófarendur því það var í miðri leið milli Njarðvíkur og Hafnarfjarðar. Siglingaleiðin á milli þessara hafna lá í gegnum þetta svæði en síðan var hluta af því úthlutað undir kræklingaeldi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Áhöfn sjómælingaskipsins Baldurs var kölluð út og beðin um að halda á staðinn til að losa hvalinn og koma honum út fyrir Stakksfjörð. Áhöfninni gekk vel að losa hræið en í ljós kom að á svæðinu er búnaður, tóg og línur sem hvalir, selir og önnur sjávarspendýr geta hæglega fest í auk þess sem hætta er á að skip og bátar flæki búnaðinn í skrúfuna.

Búnaðurinn virtist ekki lengur vera í notkun. Þegar áhöfn Baldurs hafði lokið við að losa hvalinn var hann tekinn í tog og haldið með hann út fyrir sjávarfallastrauma og honum sleppt á rek um 15 sjómílum norðvestur af Garðskaga.