35 milljarða skuldabréf Þórkötlu skráð í Kauphöll
Fasteignafélagið Þórkatla, sem keypti fasteignir Grindvíkinga, hefur gengið frá hlutafjáraukningu um 40,6 milljarða og rafrænni skráningu skuldabréfa upp á 34,9 milljarða, sem eru heildarskuldir félagsins. Rafræn skráning skuldabréfanna í Kauphöll er í samræmi við samkomulag fjármálastofnana, ríkissjóðs og Þórkötlu frá 21. apríl 2024. Skuldabréfið er verðtryggt, ber 2,95% vexti og er til 5 ára.
Þórkatla hefur keypt yfir 954 eignir í Grindavík, fyrir rúmlega 72,3 milljarða króna alls. Fjármögnun kaupanna fór fram með láni frá ríkissjóði upp á rúma 10 milljarða, yfirtöku á íbúðalánum seljenda hjá fjármálastofnunum upp á tæpa 21,7 milljarða og loks eiginfjárframlagi ríkisins upp á tæpa 40,6 milljarða.
Þórkatla gekk í vikunni formlega frá hlutafjárhækkun sem nemur fyrrnefndu eiginfjárframlagi ríkisins en samhliða bætast viðskiptabankarnir þrír, Arion banki, Íslandsbanki og Landsbanki í eigendahóp félagsins með lítinn hlut. Bankarnir fara samanlagt með tæp 0,1% í Þórkötlu en ríkissjóður fer með rúmlega 99,9% hlut í félaginu.
Sölu til Þórkötlu að ljúka og endurkaupaáætlun í undirbúningi
Frá því opnað var fyrir umsóknir um kaup Þórkötlu á íbúðarhúsnæði í Grindavík hefur félaginu borist 962 umsóknir frá einstaklingum. Enn eru á fjórða tug eigna í eigu einstaklinga sem ekki hefur verið sótt um uppkaup á, en frestur til að sækja um rennur út núna um áramótin.
F







