Bygg
Bygg

Aðsent

Vilt þú vaxa með okkur?
Mánudagur 2. júní 2025 kl. 11:03

Vilt þú vaxa með okkur?

Leikskólarnir í Reykjanesbæ eru ekki bara staðir þar sem börn dvelja á meðan foreldrarnir vinna. Þeir eru uppeldisstofnanir þar sem grunnur að góðum málþroska er lagður ásamt því að efla félagsfærni og sjálfstæði. Vinna með tilfinningagreind og kveikja fróðleiksfýsn sem býr í hverju barni. 

Menntastefna Reykjanesbæjar „Með opnum hug og gleði í hjarta” hefur það að markmiði að skapa börnum öruggt og hvetjandi umhverfi þar sem þeim líður vel, hafi tækifæri til að blómstra. Stefnan byggir á þremur leiðarljósum sem eiga að varða leiðina að farsæld allra barna. Þau eru; börnin mikilvægust, kraftur fjölbreytileikans og faglegt menntasamfélag. Til þess að þetta gangi eftir þarf hæft og gott fólk sem vinnur saman að því að skapa öruggt og þroskandi umhverfi fyrir börn. Það hefur því aldrei verið mikilvægara, né meira spennandi, að verða hluti af leikskólasamfélaginu í Reykjanesbæ.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Sveitarfélagið hefur tekið stór skref í átt að bættum starfsskilyrðum allra í leikskólum, hvort sem um ræðir stjórnendur, kennara, þroskaþjálfa, stuðningsaðila eða leiðbeinendur.  Í dag eru launakjörin orðin mun betri en áður og farin að taka mið af því hversu mikilvægu hlutverk starfsfólk leikskóla gegnir í samfélaginu.

Laun eru þó ekki eina hvatningin. Í Reykjanesbæ nýtur starfsfólk leikskóla fríðinda sem geta sannarlega skipt máli. Þar má nefna frítt fæði, 40% afslátt af leikskólagjöldum fyrir börn starfsfólks og síðast en ekki síst, styttri vinnuviku sem skapar meira jafnvægi milli vinnu og einkalífs og eykur samverustundir fjölskyldna. Þess utan fær starfsfólk leikskóla sem reknir eru af Reykjanesbæ frítt í sund, í strætó og á söfn.

Kennarar og annað starfsfólk fá auk þess aukið svigrúm til undirbúnings, sem styrkir faglegt starf og eykur vellíðan og þroska barnanna. Með rými til að skipuleggja, meta og þróa nám þeirra, aukast bæði gæði starfsins og ánægja starfsfólks. Starfið er vissulega krefjandi en afar fjölbreytt og gefandi enda víst að starfsfólk leikskóla eigi stóran hóp aðdáenda sem líta upp til þeirra og eru tilbúnir í öll þau ævintýri sem dagurinn ber í skauti sér.

Ný útfærsla á skóladagatali bætir líka lífsgæði verulega. Starfsfólk leikskóla á sex vikur í  orlof, þar af fimm vikur samfellt í sumarleyfi. Að auki er betri vinnutími tekin í haust-, vetrar- og páskafríum. Þá er leikskólum lokað á milli jóla og nýárs, sem veitir dýrmætan tíma með fjölskyldu og til hvíldar.

Þau sem starfa í leikskóla skipta máli, ekki bara fyrir börnin heldur fyrir allt samfélagið. Þau taka þátt í að móta framtíðina í UNICEF vottuðu barnvænu sveitarfélagi. Ef þú vilt starf þar sem þú hefur raunveruleg áhrif, nýtur virðingar og veitir mannsæmandi kjör og lífsgæði,  þá er leikskólastarf í Reykjanesbæ sannarlega val sem vert er að skoða.

 

Árdís Hrönn Jónsdóttir, leikskólastjóri í Tjarnarseli

Halldóra Magnúsdóttir, leikskólastjóri á Vesturbergi

Hanna Málmfríður Harðardóttir, leikskólastjóri Heiðarsels

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, leikskólastýra á Holti

Hulda Björk Stefánsdóttir, leikskólastýra á Velli

Ingibjörg Guðjónsdóttir, leikskólastjóri Asparlaut

Karen Valdimarsdóttir, leikskólastýra Gimli

María Petrína Berg, leikskólastjóri í Drekadal

Ólöf Magnea Sverrisdóttir, leikskólastjóri í Hjallatúni

Pálína Hildur Sigurðardóttir, aðstoðarskólastjóri leikskólastigs Stapaskóla

Þóra Sigrún Hjaltadóttir, leikskólastjóri Skógaráss