Aðsent

Við erum í samstarfi – ekki andstæðingar
Mánudagur 9. nóvember 2026 kl. 09:40

Við erum í samstarfi – ekki andstæðingar

Ég hef búið í Garðinum frá fæðingu, árið 1981, en alla mína tíð hef ég líka verið með annan fótinn í Sandgerði.

Ég æfði þar körfubolta, fer reglulega í sund og kem oft við í frábæru sjoppunni sem þar er. Ég á marga góða vini og samstarfsmenn í Sandgerði.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Ég keyri út á Stafnes vandræðalega oft, enda er það einn af mínum uppáhalds stöðum. Amma mín og afi eru jarðsett á Hvalsnesi og ég finn fyrir sterkri tengingu við þann stað.

Ég hef verið duglegur að ljósmynda Sandgerði í gegnum árin, sérstaklega hafnarsvæðið, sem mér þykir einstaklega fallegt og merkilegt. Í gegnum tíðina hef ég safnað saman miklum fjölda gamalla ljósmynda frá Sandgerði.

Ég er Garðmaður en Sandgerði hefur líka alltaf verið hluti af mér.

Ég hef enga sérstaka skoðun á því hvar gervigrasvöllurinn eigi að rísa. Það eina sem ég óska er að farsæl lausn finnist sem allir geti verið sáttir við.

Mér þykir afar hvimleitt og lýjandi að ágreiningurinn um staðsetningu vallarins sé að hafa vægast sagt slæm áhrif á íbúa og samskipti milli bæjarhluta.

Ég hef sjálfur fundið fyrir þessu að undanförnu og upplifað óþægilega framkomu frá ákveðnum einstaklingum vegna þess að ég er úr Garðinum.

Ég tel mikilvægt að bæjarstjórn og allir þeir sem hafa tekið þátt í umræðunni um gervigrasvöllinn geri sér grein fyrir því hvaða áhrif ágreiningurinn hefur haft á samskipti íbúa. Það hlýtur að vera sameiginlegt markmið okkar að finna lausn án þess að skapa varanlega sundrungu í samfélaginu.

Við eigum að geta verið ósammála án þess að verða andstæðingar. Ef gervigrasvöllurinn á að efla heilbrigði og samstöðu, þá megum við ekki láta ágreininginn um staðsetningu hans vinna gegn þeim tilgangi.

Það er sérstaklega áríðandi að fólk sem stendur utan ágreiningsins sæti ekki óvild eða útilokun vegna þess hvaðan það kemur.

Virðingarfyllst,

Guðmundur Magnússon

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100