Aðsent

Sýnum samstöðu fyrir bæinn okkar!
Laugardagur 21. maí 2022 kl. 06:00

Sýnum samstöðu fyrir bæinn okkar!

Þá eru kosningar afstaðnar, við Píratar og óháðir þökkum þeim sem studdu okkur kærlega fyrir stuðninginn og að mæta á kjörstað.

Kosningarnar fóru ekki alveg eins og við vildum en við erum ekki hætt, verðum áfram í andspyrnu varðandi málefni sem eru umdeild og varða íbúa.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Það fyrsta er öryggisvistun, við erum ekki á móti henni en staðarvalið þarf að henta slíkri starfsemi og þarf að vera í sátt við íbúana, þeir eiga að fá að segja sitt varðandi málið og tekið sé mark á þeirra afstöðu og hún virt.

Annað málið varðar kísilverið, það þarf að vera algerlega á hreinu að samið verði um niðurrif þess með góðu eða illu, munum aldrei sætta okkur við þetta drasl.

Þriðja málið er varðandi hugmyndir Sorpu um að Kalka verði stækkuð svo vel að hún geti annað öllu sorpi af suðvesturhorninu ef ekki meira, það er ekki gæfulegt né minnkar vistsporið að flytja ruslið eftir Reykjanesbrautinni fram og til baka, tala nú ekki um þá mengun sem getur stafað af þessu sorpi þegar verksmiðjan getur ekki annað öllu á stuttum tíma og sorpið safnast upp. Treysti engu varðandi þetta sorpbrennslumál.

Fjórða málið er svo „hringrásarhagkerfi“ þar sem bæjaryfirvöld skrifuðu undir viljayfirlýsingu varðandi ál endurvinnslu í Helguvík við „dótturfélag“ Almex USA eða mann fyrir þeirra hönd sem hefur verið í forsvari fyrir fyrirtæki sem fór m.a. í gjaldþrot sl. sumar, var áður með önnur slík fyrirtæki. Ég velti fyrir mér hvort við séum að fá svipað mál og með kísilverið og forsvarsmann þess? Hvernig datt einhverju fyrirtæki í Ameríku í hug að fara af stað með álendurvinnslu hér? Var það þessi sem skrifaði undir viljayfirlýsinguna sem er potturinn og pannan í þessu?

Andstaða gegn þessu verður fyrst á dagskrá á komandi vikum, íbúar eiga að fá nákvæmar upplýsingar um þessi málefni, kosti og galla og fá svo að kjósa í bindandi kosningu um þessi mál.

Við fórum um hverfin, sáum margt sem hefur verið lagað og bætt en einn staður virðist gleymast en það eru Hafnirnar, það þarf að malbika göturnar þar, koma upp göngustígum og laga/bæta leiksvæðið þar fyrir börnin. Þar býr einnig kona með fötlun sem kemst ekki frá húsi sínu upp á veg þar sem það strandar á að setja malbikaðan stíg frá húsi upp á veg sem hún er ekki í aðstöðu til að gera sjálf en ætti að vera lítið mál fyrir bæinn svo hún geti notið örlítið betri lífsgæða. Bæjaryfirvöld mega ekki gleyma að Hafnir eru hluti af Reykjanesbæ.

Fh. Pírata og óháðra,
Ragnhildur L. Guðmundsdóttir
Margrét Þórólfsdóttir