Neyðarsöfnun fyrir íbúa Gaza
Í kjölfar samkomulags um vopnahlé á Gaza er ein stærsta mannúðaraðgerð allra tíma hafin. Í henni mun Rauði krossinn gegna formlegu lykilhlutverki. Svo umfangsmiklar aðgerðir krefjast gríðarlegs skipulags og hefur öll hreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans verið virkjuð.
Rauði krossinn á Íslandi hefur nú sett af stað neyðarsöfnun fyrir íbúa Gaza. „Við hvetjum landsmenn og íslensk fyrirtæki til að leggja söfnuninni lið og taka þannig þátt í því lífsbjargandi starfi sem nú fer í hönd á Gaza,“ segir Gísli Rafn Ólafsson, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi.
Almennir borgarar á Gaza hafa í tvö ár þurft að þola stanslausar og vaxandi hörmungar sem hafa svipt um 1,8 milljón manns heimilum sínum og lífsviðurværi. Um 67 þúsund manns hafa verið drepin, þúsundir hafa særst og hungursneyð, sem bitnar harðast á börnum og eldra fólki, geisar. „Sorg, streita og sultur hefur verið nístandi veruleiki fólksins á Gaza,“ segir Gísli Rafn. Þau þurfi tafarlaust á skjóli, mat og vatni, lyfjum, læknisaðstoð og sálrænum stuðningi að halda. Þar komi Rauði krossinn og Rauði hálfmáninn sterkur inn. „Aðstæðum þeirra verður ekki umbylt á einni nóttu og aðgerðir okkar og annarra mannúðarsamtaka og stofnana munu standa næstu vikur og mánuði,“ bendir Gísli á. Þær þoli hins vegar enga bið. Lina verði mestu þjáningarnar þegar í stað og aðstoða alla við að ná fótfestu að nýju. „Nú breiðum við út faðminn og sýnum hvað í okkur býr,“ segir Gísli í áskorun sinni til fólks og fyrirtækja að leggja neyðarsöfnun félagsins lið.
Allar upplýsingar um neyðarsöfnunina er að finna á raudikrossinn.is. Þar getur þú lagt söfnuninni lið eða með því að hringja í:
904-1500 til að styrkja um 1.500 kr.
904-2500 til að styrkja um 2.500 kr.
904-5500 til að styrkja um 5.500 kr.
Aur:
@raudikrossinn eða 1235704000
Lagt inn á söfnunarreikning:
0342-26-12, kt. 530269-2649