Framsókn - 16. maí
Framsókn - 16. maí

Aðsent

Bryndís Björg Guðmundsdóttir félagi í Þetadeild er látin
Miðvikudagur 6. maí 2026 kl. 07:38

Bryndís Björg Guðmundsdóttir félagi í Þetadeild er látin

Bryndís Björg Guðmundsdóttir, félagi í Þetadeild Delta Kappa Gamma, félags kvenna í fræðslustörfum, lést þann 25. apríl 2026.

Hún fæddist þann 1. júní 1963. Bryndís útskrifaðist með stúdentspróf frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1982, lauk B.Ed. frá grunnskólaskori við Háskóla Íslands árið 2001, lauk náminu stjórnun og forystu í skólaumhverfi frá Endurmenntun Háskóla Íslands árið 2006 og M.Ed. í stjórnun menntastofnana árið 2021.
Málefni barna áttu hug hennar allan og setti hún svo sannarlega spor sín á skólastarf í Reykjanesbæ. Hún kenndi í grunnskólunum Holtaskóla og Heiðarskóla, var aðstoðarskólastjóri í Akurskóla og svo skólastjóri í Myllubakkaskóla frá árinu 2014. Hún var farsæll stjórnandi og hafði mikinn áhuga á fræðslumálum og velferð barna. Hún beitti sér fyrir öruggu og heilsusamlegu umhverfi fyrir bæði börn og starfsfólk og ýtti til dæmis við framkvæmdum á húsnæði skólans til að tryggja velferð og áframhaldandi þróun í Myllubakkaskóla.
Bryndís Björg var ötul í ýmsu félagsstarfi, hafði mikinn áhuga á tónlist, lærði á píanó og var í kór. Hún var virk í Þeta-deild DKG en hún gerðist félagi árið 2008.

Aðalbros
Aðalbros

Félagskonur í Delta Kappa Gamma kveðja Bryndísi Björgu með virðingu, þakklæti og söknuði og sendum fjölskyldu hennar okkar dýpstu samúðarkveðjur.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar