Meira en þrefaldað framleiðslugetuna á „töfraefninu“ astaxanthin
„Það er alveg hægt að segja að fáir viti nákvæmlega hvaða starfsemi fari fram hjá Algalíf, en við erum örþörunga-, nýsköpunar- og líftæknifélag sem hefur stækkað mjög hratt á Ásbrú frá árinu 2014,“ sagði Kári Marís Guðmundsson, sem tók við starfi forstjóra Algalífs undir lok síðasta árs. Á fundi hjá KADECO á dögunum kynnti hann starfsemi fyrirtækisins, sem nýlega lauk við risavaxna stækkun á verksmiðju sinni og stefnir enn lengra.
Algalíf ræktar örþörunginn Haematococcus pluvialis, en úr honum er unnið andoxunarefnið astaxanthin, sem Kári kallar réttilega ákveðið „undraefni“. Efnið er öflugasta náttúrulega andoxunarefni sem hægt er að rækta á iðnaðarskala í dag og er notað í hágæða fæðubótarefni fyrir menn og í vaxandi mæli fyrir gæludýr.
Einstök tækni og gríðarlegur þrýstingur
Framleiðsluferlið á Ásbrú tekur um sex vikur og byggir á lokuðu rörkerfi sem fyrirtækið hefur sjálft þróað en það þykir eitt það fullkomnasta í heiminum. Upphafið má rekja til tveggja Norðmanna með reynslu úr fæðubótageiranum, en í dag er Algalíf á meðal stærstu framleiðenda í heiminum á náttúrulegu astaxanthini og það fyrirtæki í geiranum sem hefur vaxið hvað hraðast og mest undanfarin ár.
Tæknin og umfangið á Ásbrú er magnað en hér eru nokkrar staðreyndir úr verksmiðjunni eftir stækkun:
Húsnæðið er orðið um
14.000 fermetra.
400 kílómetrar af glerrörum liggja um verksmiðjuna þar sem þörungurinn er ræktaður undir þúsundum LED-ljósa sem loga allan sólarhringinn.
1.000 bara þrýstingur er notaður í sérhæfðu ferli með koltvísýringi til að draga olíuna (astaxanthinið) út úr lífmassanum. „Þetta jafngildir því að kafað sé niður á tíu kílómetra dýpi og það er ekki á mörgum stöðum á jörðinni sem menn ráða við svona krefjandi ferli,“ segir Kári.
Framleiðslan er afar verðmæt en eitt kíló af hreinu, náttúrulegu astaxanthini kostar um eina milljón króna. Ólíkt helstu samkeppnisaðilunum, sem margir hverjir rækta þörunga utandyra, sem og í opnum tjörnum (þar sem hætta er á mengun og smithættu), fer öll framleiðsla Algalífs fram innandyra við fullkomlega stýrðar aðstæður. Þá fullvinnur Algalíf alla sína vöru hér á landi í mismunandi styrkleika af astaxanthin olíu , sem gefur félaginu mikið samkeppnisforskot.

Íslenskir lífeyrissjóðir
inn sem eigendur
Algalíf lauk nýverið við mikla stækkun sem hófst árið 2021. Við það meira en þrefaldast framleiðslugetan, fer úr 1.500 kílóum af hágæðaafurð á ári í allt að 5.000 kíló.
Samhliða þessari uppbyggingu urðu mikil tímamót í eigendahópnum síðasta haust þegar framtakssjóðurinn Aldir keypti 50% hlut í félaginu á móti tveimur norskum stofnendum þess. Á bak við Aldir standa sterkir íslenskir fjárfestar og margir stærstu lífeyrissjóðir landsins. Kári segir að nýir fjárfestar komi með gríðarlegan styrk og fjármagn inn í félagið sem veiti gott svigrúm fyrir frekari uppbyggingu.
Hjá Algalíf starfa nú um 70 manns af 17 mismunandi þjóðernum. Um 70% starfsfólksins er heimafólk með búsetu í Reykjanesbæ. Þá eru um 40% starfsmanna sérfræðingar og vísindafólk og hlutfall kvenna er sömuleiðis um 40%. Kári hrósar erlenda starfsfólkinu sérstaklega: „Margir hverjir eru ansi duglegir að læra íslenskuna og hreyknir af því. Þetta fólk er búið að setjast hér að með fjölskyldur og börn og er mjög mikilvægur innviður í sveitarfélaginu.“
Horfa til frekari stækkunar á Ásbrú
Sérstaða Íslands og Suðurnesja spilar stórt hlutverk í velgengni Algalífs. Hreina vatnið, kalda loftslagið sem heldur smitum í lágmarki, og ekki síst stöðug endurnýjanleg raforka í gegnum langtímasamninga skipta sköpum. Verksmiðjan notar um 7 megavött (MW) af raforku í dag, sem framleidd er í jarðvarmavirkjunum HS Orku og afhent af HS Veitum. Fyrirtækið er þegar með tryggan orkusamning upp á 10,5 MW til ársins 2037.
Þrátt fyrir að ætla að taka því aðeins rólega í ár á meðan nýja byggingin er keyrð upp í full afköst er Algalíf þegar farið að plana næstu skref. Markaðurinn úti í heimi vex um 10% á ári og 95% af framleiðslunni fer til útflutnings.
Framtíðarmarkmiðið er að Algalíf verði stærsti og öflugasti astaxanthin framleiðandi í heimi sem og sækja fram í ræktun og nýtingu á öðrum örþörungum sem henta okkar framleiðslu aðferðum og þekkingu innanhúss. Eins geta falist mikil tækifæri að koma astaxanthini inn í lækninga- og lyfjabransann (líkt og omega-lýsisolíur eru þegar orðnar að uppáskrifuðum lyfjum víða erlendis), og gangi það eftir þyrfti fyrirtækið líklegast að fimmfalda stærð sína.
Algalíf hefur þegar tryggt sér forleigurétt frá KADECO fyrir lóð til að stækka áfram í suðvesturátt út frá núverandi nýbyggingu á Ásbrú. Upphaflegt húsnæði félagsins var þar sem áður var hlaupabraut og vélaverkstæði hersins). Þar sem nýja byggingin var hönnuð með stóran lager, fullvinnslu og skrifstofur í huga munu næstu stækkanir einungis snúa að framleiðslukerfunum sjálfum, sem gerir áframhaldandi vöxt mun fljótlegri og hagkvæmari.










