GeoSilica hefur framleiðslu á Þeistareykjum
„Fyrir okkur hjá GeoSilica er þetta stærri áfangi en margir gera sér grein fyrir,“ segir Fida Abu Libdeh, stofnandi og framkvæmdastjóri GeoSilica en fyrirtækið mun hefja starfsemi á Þeistareykjum haustið 2025 eða sumarið 2026. Það hefur gert samning við Landsvirkjun um leigu á húsnæði og afhendingu auðlindastrauma frá jarðvarmavinnslu Þeistareykjastöðvar. Hann mun marka upphaf formlegrar fjölnýtingar á svæðinu, samkvæmt tilkynningu frá Landsvirkjun.
GeoSilica var stofnað af Fida Abu Libdeh árið 2012. Fyrirtækið framleiðir náttúruleg fæðubótarefni í vökvaformi til daglegrar inntöku. GeoSilica vinnur steinefni úr jarðhitasvæðum Íslands og þróar 100% náttúrulegar og vegan-vottaðar gæðavörur. Kísill er eitt algengasta steinefni heims og finnst víðsvegar í náttúrunni. Hann gegnir mikilvægu hlutverki í mannslíkamanum og vörur GeoSilica auðvelda upptöku hans. Kísill úr jarðhitavökva frá Þeistareykjastöð verður nýttur til framleiðslunnar.
Hluti lóðar milli skiljustöðvar og aflstöðvar Landsvirkjunar verður svokölluð fjölnýtingarlóð. Þar reisir Landsvirkjun hús sem leigt verður til GeoSilica. GeoSilica fær auðlindastrauma beint frá jarðvarmavinnslu Þeistareykjastöðvar. Vonir standa til að starfsemi geti hafist næsta haust eða sumarið 2026.
Spennandi samstarf
Fida Abu Libdeh, stofnandi og framkvæmdastjóri GeoSilica:
„Þegar við hófum starfsemi var framtíðarsýnin skýr, að þróa sjálfbæra tækni sem nýtir íslenskar auðlindir án eiturefna, án sóunar og með virðingu fyrir náttúrunni. Nú er sá draumur að verða að veruleika.
Með þessu samstarfi við Landsvirkjun fáum við einstakt tækifæri til að skala upp tækni sem umbreytir úrgangi í verðmæti, skapar störf í heimabyggð og styður við raunverulegt hringrásarhagkerfi.
Við erum nýsköpunarfyrirtæki sem sameinar vísindi og náttúru og með þessu verkefni getum við framleitt mikilvæg steinefni á náttúrulegan, hreinan og kolefnis hlutlausan hátt, hér á Íslandi. Þetta er stórt skref , ekki aðeins fyrir GeoSilica heldur einnig fyrir íslenska nýsköpun, græna atvinnuuppbyggingu og sjálfbæra framtíð.
Við teymið hjá GeoSilica viljum þakka Landsvirkjun fyrir traust, gagnsæi og einlægan vilja til að byggja upp framtíðarsýn sem sameinar orku, tækni og samfélagslega ábyrgð. Við hlökkum til að halda áfram þessu mikilvæga samstarfi.“
Bjarni Pálsson, framkvæmdastjóri Vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun:
„Við erum afar ánægð að fá GeoSilica til okkar á Þeistareykjasvæðið og hlökkum til víðtæks samstarfs til framtíðar. Starfsemi GeoSilica styður við bætta nýtingu auðlindastrauma Þeistareykjasvæðisins og mun leggja sterkan grunn að fjölnýtingu á svæðinu til framtíðar. Enn fremur leggur GeoSilica áherslu á ríkan stuðning við nærsamfélagið sem rímar vel við þær áherslur okkar hjá Landsvirkjun að vera góður granni.“
Ríkarður S. Ríkarðsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaþróunar og nýsköpunar hjá Landsvirkjun:
„Nýsköpun í orkutengdum iðnaði er sívaxandi hluti af starfsemi okkar. Við leggjum áherslu á að vera leiðandi í sjálfbærri nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa og stuðla að aukinni þekkingu, nýsköpun og tækniþróun. Með meiri nýsköpun og aukinni verðmætasköpun nýtum við betur þær auðlindir sem okkur er trúað fyrir og leggjum grunn að sterkara og betra samfélagi. Samstarf við GeoSilica fellur mjög vel að þessum áherslum okkar.“