Viðskipti

Edda Blumenstein ráðin framkvæmdastjóri Ísland Duty Free
Þriðjudagur 24. nóvember 2026 kl. 09:45

Edda Blumenstein ráðin framkvæmdastjóri Ísland Duty Free

Edda Blumenstein hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Ísland Duty Free og tekur við starfinu í apríl 2027. Hún tekur við af Liam Grundy, sem verður áfram á Íslandi fram í maí til að aðstoða við stjórnendaskiptin. Að því loknu tekur hann við nýju hlutverki hjá Gebr. Heinemann, eiganda Ísland Duty Free.

Edda situr í stjórn Festi, er stjórnarformaður Útilífs og Rannsóknaseturs verslunarinnar og starfar sem lektor við Háskólann á Bifröst. Hún vann áður sem ráðgjafi við mótun fimm ára stefnu Ísland Duty Free og hafði í þeirri vinnu samráð við starfsfólk, birgja og samstarfsaðila.

„Við stefnumótunarvinnuna kynntist ég starfsfólki Ísland Duty Free og starfsemi fyrirtækisins mjög vel. Ég öðlaðist djúpan skilning á starfseminni og ber mikla virðingu fyrir því starfi sem þar fer fram,“ segir Edda í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Tók þátt í að móta stefnu fyrirtækisins

Ísland Duty Free rekur fríhafnarverslanir á Keflavíkur- og Akureyrarflugvelli. Grundy tók við sem framkvæmdastjóri í september 2025 og stýrði uppbyggingu félagsins í kjölfar þess að Gebr. Heinemann tók við rekstri Fríhafnarinnar. Í stjórnartíð hans voru verslanirnar á Keflavíkurflugvelli endurhannaðar og félagið opnaði verslun á Akureyrarflugvelli og verslun með tísku- og fylgihluti í Leifsstöð.

Fram kemur í tilkynningunni að undir stjórn Eddu hyggist fyrirtækið efla samstarf við íslenska birgja og Isavia og bæta þjónustu við ferðamenn.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100