Viðskipti

Aðalbláberja og Chilli sósa Urta Islandica í Reykjanesbæ fékk gull
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 13. september 2022 kl. 15:11

Aðalbláberja og Chilli sósa Urta Islandica í Reykjanesbæ fékk gull

„Aðalbláberja og Chilli“ sósa Urta Islandica hlaut  gullverðlaun í matarhandverkskeppni, „Nordic Artisan Food Awards 2022“, skipulagðri af Slow Food Nordic, sem haldin var í Stokkhólmi 1. - 3. september. Fjölskyldufyrirtækið Urta Islandica ehf. sem m.a. rekur verslunina Nándina í Keflavík sendi sultuna til keppninnar og er framleiðandi hennar.

Sjö íslensk fyrirtæki skráðu sig til þátttöku í mismunandi flokkum, tvenn þeirra hlutu silfurverðlaun í keppninni.  Þetta var í fyrsta sinni sem keppt var í norrænu matarhandverki þar sem öllum framleiðendum á Norðurlöndum var boðin þátttaka.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Urta Islandica ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem framleiðir allar sínar vörur í Reykjanesbæ. Megin uppistaða alls hráefnis er íslenskt og nytjaðar jurtir sem eru meða annarra staða tíndar á Reykjanesi. Urta Islandica er viðurkennt Reykjanes Geopark fyrirtæki og leggur fyrirtækið áherslu á tengingu þess við Reykjanes í framleiðslu sinni.