Pistlar

Lokaorð: Skemmtum okkur
Laugardagur 28. maí 2022 kl. 08:38

Lokaorð: Skemmtum okkur

Sumarið er tíminn, þegar hjartað verður grænt, kvað Bubbi Mortens. Kannski voru úrslit sveitarstjórnarkosninganna svolítið í þeim dúr. En sumarið er líka tíminn þegar að hjörtun fara á stjá. Það verður allt eitthvað svo miklu auðveldara þegar sólin og hitinn taka yfir eftir langan vetur. Hið daglega argaþras víkur fyrir gleðinni sem blómstrandi gróður og sólargeislarnir veita okkur. Það er kominn tími fyrir hvern og einn að njóta sumarsins, njóta fegurðar náttúrunnar, taka fram grillið og vera með sínum nánustu. Sleppa svolítið fram af sér beislinu og lifa í núinu.

Sumarið er líka tími framkvæmda þar sem við dittum að því sem utandyra er, málum það sem þarf að mála, fegrum tré og runna og sinnum blómunum í kringum okkur, sláum grasið og reytum arfa.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Sumarið er líka tími gulu vestanna, þar sem hluti unglinga fær sína fyrstu snertingu við atvinnulífið í gegnum Vinnuskólann. Fara í hópum um bæinn, hreinsa stéttar, laga blómabeð, og tala saman. Traktorar og sláttuvélar bruna um tún bæjarins og reynt er eftir bestu getu að halda bænum okkar sem snyrtilegustum. Gulu vestin gera bæinn okkar fallegri og skemmtilegri – og við getum hjálpað til með að gæta öryggis í umferðinni þar sem þau eru á ferð, þannig að allir komi heilir heim frá vinnu.

Sumarið er minn tími. Eitt það notalegasta sem ég geri í garðinum á sumrin er að reyta arfa. Leggjast á hnén með klóruna og stilla á núvitund. Hlusta á fuglasönginn og njóta lífsins, þó einfalt sé. Um það á sumarið að snúast. Að hver og einn njóti sumarsins á sínum forsendum. Skemmtum okkur.

Hannes Friðriksson