Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Mannlíf

Stór-tónleikar Forskóladeildar
Mánudagur 16. mars 2026 kl. 09:44

Stór-tónleikar Forskóladeildar

Miðvikudaginn 18. mars n.k., stendur Forskóladeild Tónlistarskóla Reykjanesbæjar fyrir tvennum Stór-tónleikum í Stapa, Hljómahöll. Á tónleikunum koma fram nemendur í Forskóla 2, sem er allur 2. bekkur grunnskólanna (7 ára börn) og með þeim leika Lúðrasveit TR og Rokkhljómsveit.
Fyrri tónleikarnir verða kl.17. Á þeim koma fram forskólanemendur úr Heiðarskóla, Holtaskóla og Stapaskóla. Seinni tónleikarnir verða kl.18. Á þeim koma fram forskólanemendur úr Akurskóla, Hááleitisskóla, Myllubakkaskóla og Njarðvíkurskóla. Tónleikarnir taka um 30 mínútur hvor.
Forskóladeildin hefur um langt árabil staðið fyrir Stór-tónleikum einu sinni á vetri, ásamt lúðrasveitinni og oft einnig rokkhljómsveit eins og verður að þessu sinni, en hljómsveitirnar eru í hlutverki „undirleikara“ fyrir forskólanemendurna. Fyrstu árin fóru tónleikarnir fram í grunnskólunum og svo lokatónleikar haldnir í Íþróttamiðstöð Njarðvíkur, en með tilkomu Hljómahallar og nýs húsnæðis Tónlistarskólans, var ákveðið á þeim tíma að færa tónleikana í hinn glæsilega tónleikasal, Stapa.
Mikil ánægja hefur verið með það fyrirkomulag enda öll umgjörð tónleikanna hin glæsilegasta, stórt svið og flott sviðslýsing.
Á tónleikunum koma fram alls um 290 börn og ungmenni, þar af tæplega 260 forskólanemendur, sem flytja fjölbreytta og stórskemmtilega efnisskrá, bæði sungna og leikna á hin ýmsu hljóðfæri.
Allir eru hjartanlega velkomnir.

(Fréttatilkynning frá TR.)

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir