K Steinarsson 16-31.júní
K Steinarsson 16-31.júní

Mannlíf

Ósk barnanna rætist: „Hjarta Ásbrúar“ opnar í Andrews Theater
Þriðjudagur 30. júní 2026 kl. 11:45

Ósk barnanna rætist: „Hjarta Ásbrúar“ opnar í Andrews Theater

Nýtt samfélagshús fyrir börn og fjölskyldur, Hjarta Ásbrúar, hefur opnað dyr sínar. Hugmyndin að húsinu kom frá börnunum sjálfum sem kölluðu eftir miðlægum samverustað í hverfinu.

Vorið 2024 tóku um 400 börn í Háaleitisskóla þátt í samráðsverkefninu Börnin að borðinu. Þar mótuðu þau framtíðarsýn fyrir hverfið sitt sem skilaði sér í þessu nýja samfélagshúsi. Verkefnið vakti mikla athygli og hlaut meðal annars Hönnunarverðlaun Íslands á síðasta ári.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

„Þetta er staðurinn sem börnin sjálf báðu um. Hér eiga öll börn í hverfinu samastað, sama hvaðan þau koma,“ segir Thelma H. Hermannsdóttir, verkefnastjóri Hjarta Ásbrúar.

Brú á milli ólíkra menningarheima

Ásbrú er meðal fjölbreyttustu samfélaga landsins. Í Háaleitisskóla, sem er jafnframt Réttindaskóli UNICEF og handhafi Íslensku menntaverðlaunanna, eru um 70% nemenda af erlendum uppruna og meirihluti þeirra talar annað móðurmál en íslensku á heimilinu.

Hjarta Ásbrúar á að þjóna sem samverustaður fyrir alla fjölskylduna, þvert á kynslóðir og tungumál. Markmiðið er að mæta hverju barni á þess eigin forsendum og opna leiðir inn í samfélagið og tómstundastarf.

Fjölbreytt og gjaldfrjálst sumarstarf

Starfið sem boðið verður upp á í sumar er fjölbreytt og sniðið að ólíkum hópum. Til að tryggja að engir þröskuldar standi í vegi er allt starf í húsinu algjörlega ókeypis og engar kröfur gerðar um skráningu.

Íþróttanámskeið fyrir börn

Íþróttafélögin Keflavík og Njarðvík munu bjóða upp á gjaldfrjáls fótbolta- og körfuboltanámskeið í miðstöðinni í sumar, sem gefur börnum tækifæri á að prófa sig áfram í skipulögðu starfi.

Dagskrá fyrir fjölskyldur og foreldra

Boðið verður upp á foreldramorgna á föstudögum fyrir þá sem eru í fæðingarorlofi. Á þriðjudögum og miðvikudögum verða sérstakar fjölskylduopnanir þar sem tilvalið er að mæta með mat á grillið og leika sér saman.

Menning, afþreying og opið hús

Á laugardögum verða leiklistarsmiðjur fyrir fullorðna og þá verða leikir HM í fótbolta sýndir á risaskjá í bíósal hússins. Fyrir eldri börnin, í 8. til 10. bekk, verður boðið upp á opin hús í samstarfi við Flotann.

Brú yfir í haustið

Sumarstarfið á að virka sem mikilvæg brú inn í skipulagt starf vetrarins. Með því að hafa opið hús án hindrana í sumar er stefnt að því að tengja börnin beint inn í reglubundnar íþróttir og tómstundir þegar skólarnir byrja aftur í haust.

„Það er frábært að þessi flotta hugmynd sé að raungerast þar sem það er mikilvægt að öll börn geti tekið þátt í skipulögðu starfi í sínu nærumhverfi,“ segir Guðni Erlendsson, framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Reykjanesbæjar (ÍRB).

Öflugur stuðningur bakhjarla

Verkefnið er liður í innleiðingu farsældarlaganna á Suðurnesjum. Fjörheimar og ÍRB sjá um daglegan rekstur miðstöðvarinnar, en hún byggir á grunni sem Farsældarráð Suðurnesja og Svæðisstöð íþróttahéraða hafa lagt.

Á bak við verkefnið stendur breiður hópur bakhjarla sem gerir þetta mögulegt. Íþróttabandalag Reykjanesbæjar og Njarðvík hlutu styrk frá ráðuneyti mennta- og barnamála, sem valdi verkefnið sérstaklega til að efla farsæld barna. Þá leggur fasteignafélagið Bjartavík Andrews Theater til leigulaust, Kadeco styður reksturinn og veitir faglegt bakland, og Isavia, Háaleitisskóli ásamt Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum styðja jafnframt dyggilega við bakið á verkefninu.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar