Mannlíf

Jólin í Grindavík  eða Ameríku
Mánudagur 20. desember 2021 kl. 16:14

Jólin í Grindavík eða Ameríku

Erla Ósk Pétursdóttir framkvæmdastjóri Marine Collagen ehf. er sælkeri í Grindavík sem bakar fyrir hver jól. Hún hefur fagnað jólum á Íslandi, í Bandaríkjunum, Japan og víðar. Hún skreytir passlega mikið, strax eftir þakkargjörðarhátíð og sækir jólatónleika og Baggalútur kemur henni í jólaskap. Hún segir Covid ekki þvælast fyrir sér í undirbúningi jólanna og hlakkar til yndislegra tíma. Hér koma jólasvörin frá Erlu.

Hvernig hagar þú jólagjafainnkaupum?

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ég reyni að kaupa sem mest á netinu, það er svo miklu einfaldara og fljótlegra.  Og þá er hægt að nýta aðventuna í að njóta með fjölskyldunni.  Jólagjafakaupin í ár voru reyndar að mestu gerð í mæðgnaferð í Dublin um miðjan nóvember, sem var mjög skemmtilegt líka enda mesta áherslan á samveru og notarlegheit.

Hvað með jólaskreytingar, eru þær fyrr í ár?

Ég skreyti yfirleitt nokkuð snemma eða í lok nóvember. Reyni að koma sem mestu upp strax eftir þakkargjörðarhátíðina, en á mínu heimili er alveg bannað að skreyta fyrr en hún er búin.

Skreytir þú heimilið mikið?

Ég skreyti svona passlega mikið.  Það blundar í mér Clark Griswald en hann hefur ekki enn náð að brjóta sér almennilega leið í gegn. Jólatréð setjum við samt strax upp, enda viljum við njóta þess alla aðventuna.

Bakarðu fyrir jólin og ef hvað þá helst? Áttu þér uppáhaldssmáköku?

Ég baka alltaf eitthvað, já, en ég reyni að baka ekki of mikið þar sem ég er mesti sælkerinn á heimilinu og enda oftast á því að borða mest allt sjálf. Súkkulaðidropa-smákökurnar frá ömmu Erlu eru í miklu uppáhaldi sem og lagtertan góða.  Einnig finnst mér sörur æðislegar en hef ekki lagt í að baka þær sjálf.

Eru fastar jólahefðir hjá þér?

Þar sem maðurinn minn er frá Bandaríkjunum, þá höldum við upp á jólin á ólíkan hátt eftir því á hvorum staðnum við erum. Þegar við erum á Íslandi fögnum við á aðfangadag og þegar við erum í Bandaríkjunum fögnum við á jóladag.  En á báðum stöðum förum við alltaf í messu, borðum góðan mat og njótum samveru með stórfjölskyldunum. Fyrir jólin er ómissandi hefð að keyra út jólakortunum í Grindavík, og um áramótin er fögnuðurinn í Efstahrauninu alveg til að toppa hátíðina.

Hvernig er aðventan - hefðir þar?

Jólatónleikar og kósýkvöld að horfa á jólamyndir eru ómissandi á aðventunni hjá mér.  Mér finnst kórtónleikar sérstaklega hátíðlegir og ég fer á jólatónleika með mismunandi kórum á hverju ári.  Einnig hef ég síðustu ár farið á jólatónleika Baggalúts í góðra vina hópi og þar fæ ég alltaf jólaandann yfir mig.

Fyrir mitt leyti er Covid ekkert að þvælast fyrir undirbúningi jólanna.  Mér finnst allt í lagi að geta ekki verið út um allt, enda mikilvægt að staldra við og slaka á á aðventunni. Og ef við Grindavíkurdætur náum að feta okkur í takmörkununum og halda jólatónleikana okkar, þá verður aðventan fullkomnuð.

Hver eru fyrstu jólin sem þú manst eftir? Áttu skemmtilega jólaminningu?

Fyrstu jólin sem ég man eftir voru þegar við bjuggum í Englandi þegar ég var 6 ára. Sérstaklega man ég eftir að skoða Argos bæklinginn og merkja við allt sem mig langaði í. Ég hef upplifað jólin á nokkrum stöðum en jólin í Japan og á Havaí standa upp úr sem skemmtilegustu jólaminningarnar.  Við fórum með tengdafjölskyldu minni til Okinawa í Japan árið 2014 og með minni fjölskyldu til nokkurra eyja á Havaí árið 2018. Samvera og notalegheit einkenndu þessar hátíðir en fegurðin á þessum eyjum skemmdi heldur ekkert fyrir.

Hefurðu sótt messu um jólahátíðirnar í gegnum tíðina?

Já, ég hef alltaf farið í messu nema eitt árið þegar tveir yngstu synir mínir (sem þá voru 2 mánaða og 2 ára) voru báðir veikir.  En aðfangadagskvöld var samt sem áður yndislegt, þar sem við hlustuðum bara á messuna og borðuðum svo bara þegar öllum leið vel.  Þessi sama jólahátíð var reyndar ansi skrautleg því strax eftir veikindin um jólin þá kom ælupest og njálgur og á þrettándanum þá brotnaði helluborðið hjá okkur.  Þetta voru ansi eftirminnileg jól.

Eftirminnilegasta jólagjöfin?

Ég man eftir mörgum frábærum jólagjöfum: Skíðin frá mömmu og pabba í denn, úrið frá manninum mínum (sem þá var kærasti minn) og mynda- og minningabók frá yndislegri vinkonu.

Er eitthvað sérstakt sem þig langar að fá í jólagjöf?

Nýja bókin frá Brené Brown, Atlas of the Heart.

Hvað verður í jólamatinn hjá þér á aðfangadagskvöld? Eru hefðir í mat?

Það er ekki alveg ákveðið en líklegast Wellington nautalund. Maðurinn minn eldar eiginlega alltaf og ég gef honum alveg frjálsar hendur, enda allt svo gott sem hann eldar. Þegar við erum í Bandaríkjunum þá er yfirleitt lasagna á aðfangadagskvöld og heljarinnar matarveisla á jóladag.