Framsókn - rafrænt prófkjör
Framsókn - rafrænt prófkjör

Mannlíf

Hljóðfærakynning fyrir Forskóla 2 á „Degi tónlistarskólans“
Föstudagur 6. febrúar 2026 kl. 23:49

Hljóðfærakynning fyrir Forskóla 2 á „Degi tónlistarskólans“

Tónlistarskóli Reykjanesbæjar efnir til hinnar árlegu hljóðfærakynningar fyrir nemendur Forskóla 2, laugardaginn 7. febrúar nk., sem er árlegur „Dagur tónlistarskólans“ hér á landi. Nemendur í Forskóla 2 eru öll börn í Reykjanesbæ í 2. bekk grunnskólanna.

Dagskráin hefst kl.10:30 í Stapa, Hljómahöll, með stuttum tónleikum forskólanemendanna þar sem þeir flytja 2 hressileg lög við undirleik kennara- og nemendahljómsveitar Tónlistarskólans. Að tónleikunum loknum færa allir sig yfir í Tónlistarskólann þar sem forskólanemendurnir fá kynningar á þeim hljóðfærum sem hæfa ungum börnum að læra á.

Það verða kennarar skólans sem sjá um kynningarnar og njóta aðstoðar nokkurra nemenda sem komnir eru vel áleiðis í hljóðfæranámi.

Nemendur forskólans fá ekki aðeins kynningu, heldur fá þeir að handleika og prófa hljóðfærin og verður þeim leiðbeint við það. Hljóðfærakynningunni lýkur kl.12:15.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk