Mannlíf

Greifarnir snúa aftur í Stapa – þar sem húsið fylltist einu sinni af reyk
Sunnudagur 5. júlí 2026 kl. 18:01

Greifarnir snúa aftur í Stapa – þar sem húsið fylltist einu sinni af reyk

Greifarnir eru á 40 ára afmælisferð um landið í sumar undir yfirskriftinni Síðasta sveitaballið og koma í Stapa í Hljómahöll laugardaginn 11. júlí.

Hljómsveitin byrjaði fyrir rúmum 40 árum og hefur í gegnum tíðina spilað á ótal sveitaböllum, tónleikum, bæjarhátíðum og dansleikjum um allt land. Í sumar eru Greifarnir að rifja upp þessa gömlu góðu ballstemningu — ekki sem hefðbundna tónleika, heldur alvöru sveitaball þar sem fólk syngur með, dansar og hittir gamla vini.

Stapi á sérstakan stað í sögu Greifanna. Hljómsveitin spilaði þar á fyrstu árum sveitarinnar, meðal annars árin 1986, 1987 og 1988, og aftur síðar á tíunda áratugnum. En eitt kvöld í Stapa, líklega árið 1987, er sérstaklega eftirminnilegt.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Á þessum tíma voru reykvélar ekki orðnar algengar eins og síðar varð, en Greifarnir höfðu séð í sjónvarpsupptökum hjá Ríkisútvarpinu hvernig hægt var að nota sérstakt efni til að búa til sviðsreyk sem gerði ljósin miklu flottari. Í kjölfarið var sendur maður í leiðangur til að finna slíkt efni. Það reyndist vera til sölu í Skátabúðinni og hann kom til baka með risastóran poka.

Þegar pokinn kom fannst mönnum þetta heldur mikið magn og spurðu hvort ekki hefði verið hægt að fá eitthvað minna. Svarið var að þetta ætti víst að vera „nóg til að fylla Wembley“ — og því var hugsað með sér að þetta myndi duga Greifunum í heilt sumar, jafnvel tvö.

Á balli í Stapa var síðan ákveðið að prófa þetta. Hugmyndin var einföld: setja örlítið magn af efninu á fægiskóflu aftast á sviðinu, kveikja í og fá fallegan sviðsreyk. En framkvæmdin fór aðeins úr böndunum. Pokinn rann úr höndum mannsins sem sá um reykinn og lenti beint ofan á fægiskóflunni. Á örskömmum tíma brann allt efnið upp — efni sem átti að endast heilt sumar eða tvö — og þykkur reykur fór að myndast aftast á sviðinu.

Reykurinn færðist svo hægt og rólega fram eftir sviðinu þar til meðlimir hljómsveitarinnar hurfu einn af öðrum í reykjarmökkinn. Það sem gerði augnablikið enn skrautlegra var að Greifarnir voru einmitt að flytja lagið Nótt, þar sem sungið er: „Finnst þér allt vonlaust, horfið í reyk.“

Hljómsveitin gat lítið annað en hlegið. Ballið þurfti að stöðva í um hálftíma, reykræsta húsið og láta vita að ekki væri kviknað í. Svo var haldið áfram eins og ekkert hefði í skorist.

„Þetta er ein af þessum sögum sem maður gleymir aldrei,“ segir Kristján Viðar Haraldsson, söngvari Greifanna. „Það væri gaman að vita hvort einhverjir á Suðurnesjum muna enn eftir þessu kvöldi. Við lofum þó að reykurinn verður í miklu hófstilltara formi núna — ef hann verður þá yfirhöfuð með.“

Á dagskránni í Stapa verða þekktustu lög Greifanna í bland við valdar perlur sem tilheyra gömlu góðu ballstemningunni. Markmiðið er einfalt: að skapa kvöld þar sem fólk upplifir aftur þá tilfinningu að fara á ball — ekki bara á viðburð.

Greifarnir – Síðasta sveitaballið
Stapi / Hljómahöll, Reykjanesbæ
Laugardaginn 11. júlí
Kl. 22:00–01:00

Forsala miða er á Tix.is og einnig verða miðar seldir við innganginn.

Nánari upplýsingar má finna á www.greifarnir.is.

Frá Greifaballinu í Stapa 1997.
Greifarnir 1986.