Fjölskyldudagar í Vogum 14.–17. ágúst
Glæsileg hátíð með fjölbreyttri dagskrá – frítt inn á alla viðburði
Að venju eru Fjölskyldudagar í Sveitarfélaginu Vogum skipulagðir af félagasamtökum bæjarins. Reiknað er með að hátíðin í ár, sem fer fram dagana 14.–17. ágúst, verði enn glæsilegri og skemmtilegri en áður.
Hátíðin verður með hefðbundnu sniði þar sem vinsælir dagskrárliðir á borð við hverfagrill, brekkusöng og tónleika verða á sínum stað – og eflaust verða einnig kynntar spennandi nýjungar.
Frítt er inn á alla viðburði hátíðarinnar og eru íbúar hvattir til að taka virkan þátt. Gestir utan úr bæ eru einnig velkomnir – og eins og alltaf taka Vogar opnum örmum á móti öllum.