Vinnvinn
Vinnvinn

Mannlíf

Gunnhildur Þórðardóttir opnar sýningu í Jónshúsi
Þriðjudagur 5. ágúst 2025 kl. 10:46

Gunnhildur Þórðardóttir opnar sýningu í Jónshúsi

Kerfi í Jónshúsi í Kaupmannahöfn 9. ágúst til 20. september 2025

Sýningin Kerfi með listaverkum eftir Gunnhildi Þórðardóttur mun opna í Jónshúsi í Kaupmannahöfn laugardag 9. ágúst kl. 15. Gunnhildur Þórðardóttir er myndlistarmaður, skáld og kennari og hefur áður haldið einkasýningu í Jónshúsi eða fyrir rúmlega tuttugu árum síðan. Listaverk Gunnhildar fjalla oft um heimspekileg fyrirbæri en í listaverkum sínum túlkar hún vangaveltur sínar um lífið og tilveruna auk þess sem hringrásarhagkerfið hefur alltaf verið ofarlega á baugi í hennar verkum enda mikill umhverfissinni. Öll verkin á sýningunni Kerfi eru gerð úr endurunnum listaverkum á striga en einnig verða ný grafíkverk sem eru eins konar tilraunir með form.

Listin er alþjóðlegt hreyfiafl og þannig vill listamaðurinn túlka heiminn í gegnum verk sem hreyfa við áhorfandanum með jafnvægi lita og forma eða meta fegurðina og einfaldleikann í að endurnota og uppvinna efni (skapandi endurvinnsla).

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Meðan á opnunni stendur mun listamaðurinn lesa upp ljóð úr óútkominni ljóðabók sinni Vetrarmyrkur. Allir velkomnir og léttar veitingar.

Nánar um listamanninn:

Gunnhildur Þórðardóttir er myndlistarmaður, skáld og kennari eins og áður sagði. Hún lauk tvíhliða BA námi í listasögu og fagurlistum frá Listaháskólanum í Cambridge árið 2003 og MA í liststjórnun frá sama háskóla árið 2006 og lauk viðbótardiplóma í listkennslu við LHÍ á haustönn 2019. Hún hefur haldið margar einkasýningar meðal annars í Listasafni Reykjanesbæjar, Kirsuberjatrénu, í Suðsuðvestur, Flóru á Akureyri, í SÍM salnum, Hannesarholti, Jónshúsi, Slunkaríki, sal Íslenskrar grafíkur auk þess að taka þátt í samsýningum í Listasafni Íslands, Hafnarborg, Listasafni Reykjanesbæjar, Svavarssafni, Norræna húsinu, 002 gallerí og Tate Britain. Hún er stofnandi listahátíðarinnar Skáldasuðs og Myndlistarskóla Reykjaness. Hún fékk ljóðaverðlaunin Ljósberann árið 2019 og hefur tekið þátt í fjölda upplestra.

Sýningin stendur í 6 vikur eða til 20. september og verður opin á opnunartíma Jónshúss þriðjudaga - föstudaga 11-17 og laugardaga og sunnudaga 10-16.