Almannavarnir á óvissustig
Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hafa ákveðið að færa almannavarnastig af hættustigi á óvissustig vegna umbrota á Reykjanesi.
Níunda eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni er nú lokið og virkni í gígunum hefur dvínað, lítið hefur sést af gasmengun eða gosmóðu nýlega. Á vef Veðurstofunnar kemur fram að lífshættulegt er að ganga á nýstorknuðu hrauni þar sem yfirborð skorpu getur brostið án fyrirvara og glóandi hraun leynst beint undir. Einnig eru hættur við hraunjaðra þar sem þunnfljótandi hrauntungur geta skyndilega runnið fram.
Gasmengun getur áfram farið yfir hættumörk í nágrenni við eldstöðina. Nýtt hættumatskort Veðurstofunnar hefur verið gefið út og mun gilda næstu vikur. Kortið endurspeglar að gosinu sé lokið, en hættur vegna nýmyndaðs hrauns og hugsanlegrar gasmengunar séu enn til staðar.