Mannlíf

Allt að fyllast á „We Will Rock You“ – uppselt um helgina og örfáir miðar lausir næstu helgi
Föstudagur 20. mars 2026 kl. 15:47

Allt að fyllast á „We Will Rock You“ – uppselt um helgina og örfáir miðar lausir næstu helgi

Það er rífandi gangur hjá Leikfélagi Keflavíkur þessa dagana. Sýningin „We Will Rock You“ hefur slegið í gegn og nú er svo komið að uppselt er á næstu þrjár sýningar.

Leikfélagið sendi frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að miðasala hafi farið fram úr björtustu vonum. Þegar er orðið uppselt á sýningar kvöldsins (20. mars) sem og sýningar laugardagsins og sunnudagsins.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir
Staðan á miðasölu:
  • Föstudagur 20. mars: UPPSELT

  • Laugardagur 21. mars: UPPSELT

  • Sunnudagur 22. mars: UPPSELT

  • Föstudagur 27. mars: Örfáir miðar lausir

  • Laugardagur 28. mars: Fáir miðar lausir

  • Sunnudagur 29. mars: Fáir miðar lausir

„Ertu ekki alveg örugglega búin að íhuga það að tryggja þér miða á þessa sýningu? Það er allt að fyllast,“ segir í hvatningu frá félaginu, en ljóst er að þeir sem vilja berja sýninguna augum þurfa að hafa hraðar hendur.

Miðasala fer fram á Tix.is og eru bæjarbúar og aðrir velunnarar leiklistar hvattir til að tryggja sér sæti áður en það verður um seinan.