Byko
Byko

Mannlíf

Söng og dansaði Twist Again fyrir gestina
Fimmtudagur 19. mars 2026 kl. 09:40

Söng og dansaði Twist Again fyrir gestina

Halla Karen Guðjónsdóttir fermdist í Njarðvíkurkirkju vorið 2002. Þegar hún lítur til baka man hún best eftir hlátursköstum í kirkjunni, dýrmætum undirbúningstímum með móður sinni og miklu hugrekki á sjálfan fermingardaginn. Halla braut nefnilega blað þegar hún ákvað að syngja og dansa fyrir veislugesti, en þar kviknaði neisti sem hefur fylgt henni alla tíð síðan.

Fermdist hvenær og hvar: 10. mars 2002 í Njarðvíkurkirkju.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Prestur: sr. Baldur Rafn Sigurðsson.

Hvaða minningar standa sterkast eftir frá fermingunni þinni og fermingarundirbúningnum?

Ég man að við vorum bara sjö sem vorum að fermast þennan dag en það var alveg ótrúlega gaman hjá okkur og við fengum mörg hlátursköst í kirkjunni. Í undirbúningnum man ég eftir dásamlegum augnablikum með mömmu þar sem við vorum að velja þema, græja skreytingar og plana matinn.

Hvernig fannst þér sjálfri fermingardagurinn þinn?

Mjög skemmtilegur en man að mér fannst hann líða ansi hratt. Ég ákvað að syngja í fermingunni minni sem var alls ekki eitthvað sem aðrir í kringum mig voru að gera. Ég söng og dansaði við lagið Twist again í veislunni og það vakti mikla lukku. Ég man að ég hafði lagt upp úr því að vita hverjir allir væru sem voru að koma í veisluna mína því ég vildi engin vandræðilegheit.

Var fermingardagurinn eins og þú hafðir ímyndað þér?

Já, mig minnir það. Mamma mín var einstaklega góð í skreytingum og veitingum og fékk vinkonur sínar í að aðstoða sig. Þegar ég hugsa til baka þá upplifi ég mikla hlýju og gleði á þessum degi og í öllum undirbúningnum, þó svo að það hafi alveg pottþétt verið tekin einhver góð stressköst yfir hinu og þessu sem var ekki að ganga upp.

Manstu eftir einhverri sérstakri gjöf sem þú fékkst eða einhverju öðru sem hafði sérstaka þýðingu fyrir þig?

Ég man að mér fannst mjög fullorðinslegt að fá stóra kertastjaka á fæti sem ég tók með mér þegar ég flutti að heiman, svo fékk ég marga fallega skartgripi og Biblíu. En sú sem stóð hvað mest upp úr var gjöf frá foreldrum og systrum. Þriggja hæða karaokegræja með fimm diska spilara, míkrófónum og þó nokkrum geisladiskum og utanlandsferð til Ameríku.

Hver var tíðarandinn í kringum ferminguna þína – voru einhverjar sérstakar hefðir, tíska eða tónlist sem settu svip á þennan tíma?

Ég held að þetta hafi verið bara nokkuð hefðbundið tímabil, það voru fæstar sem höfðu litað eða klippt hárið og flestar voru lítið sem ekkert farðaðar.

Þegar þú lítur til baka, hvaða gildi eða lærdóm tókstu með þér úr fermingunni sem hefur fylgt þér í lífinu?

Ég man að setningin sem ég valdi mér var: „Allt sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra.“ Ég reyni enn í dag að lifa eftir því.

Það var einnig ansi stór ákvörðun að syngja fyrir framan alla gestina og til þess þurfti mikið hugrekki. Ég held að það hafi alveg verið vísir að því sem kom í framhaldi í mínu lífi. Að uppgötva að það fylgir því ansi notaleg tilfinning að fá fólk til að hlæja og skemmta sér. Einnig lærði ég svo sannarlega hvernig á að búa til góðan viðburð og það hefur fylgt mér.

Manstu eftir fermingarfötunum eða klippingunni?

Já, auðvitað, það er svo stutt síðan ég fermdist. Ég fór í hárgreiðslu og prufugreiðslu og var með rosa fín lifandi blóm í hárinu. Það var algjört bann við því að klippa hárið stuttu fyrir fermingu á mínu heimili. Fermingarkjólinn keypti ég með mömmu í Kringlunni, að mig minnir í búðinni Sautján, kjóll sem er það hefðbundinn fyrir fermingu að fermingarbörn dagsins í dag eru líkleg til þess að vera eins.

Ertu að fara í einhverjar fermingarveislur í ár?

Já, ég er að fara í að minnsta kosti tvær fermingarveislur.