Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Mannlíf

Stuttmynd framhaldsskólanema slær í gegn: Yfir 65 þúsund áhorf á rúmri viku
Föstudagur 20. mars 2026 kl. 14:23

Stuttmynd framhaldsskólanema slær í gegn: Yfir 65 þúsund áhorf á rúmri viku

Stuttmyndin „Eftir klukkan sex“, sem unnin var fyrir Stuttmyndakeppni framhaldsskólanna, hefur vakið gríðarlega athygli og farið eins og eldur um sinu á netinu. Myndin fjallar um einmanaleika og mikilvægi þess að foreldrar hlusti á börnin sín.

Það eru þau Sóley Guðjónsdóttir og Kacper Agnar Kozlowski hjá SkySaga Studio sem standa að baki myndinni, en hún hefur þegar náð yfir 65 þúsund áhorfum á YouTube. Þetta verður að teljast óvenjulegur árangur fyrir íslenska stuttmynd á svo skömmum tíma.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir
Einmanaleikinn bak við brosið

Myndin er gerð í heimildarmyndastíl og fylgir ungi afgreiðslustúlku, leikinni af Alexöndru Rós Þorkelsdóttur, sem vinnur í bakaríi yfir jólafríið. Á vinnutíma mætir hún viðskiptavinum með bros á vör, en þegar heim er komið eftir klukkan sex tekur við annar og talsvert dekkri veruleiki.

Heima fyrir ríkir mikill ágreiningur á milli foreldra hennar, sem leikin eru af þeim Ebbu Guðnýju Guðmundsdóttur og Tómasi Oddi Eiríkssyni. Þau eru svo upptekin af eigin vandamálum og rifrildum að þau gleyma að huga að dóttur sinni, sem upplifir mikinn tómleika og einmanaleika.

Skilaboð til foreldra

Að sögn aðstandenda kviknaði hugmyndin út frá löngun til að varpa ljósi á aðstæður barna, sérstaklega skilnaðarbarna, þar sem foreldrar verða stundum svo niðursokknir í eigin áhyggjur að þeir missa sjónar á líðan barna sinna.

„Við vildum sýna þessa hlið sem enginn sér,“ segir í lýsingu myndarinnar.

Skapandi teymi
  • Handrit og leikstjórn: Sóley Guðjónsdóttir

  • Upptaka og klipping: Kacper Agnar Kozlowski

  • Aðalhlutverk: Alexandra Rós Þorkelsdóttir

  • Önnur hlutverk: Ebba Guðný Guðmundsdóttir og Tómas Oddur Eiríksson

Viðbrögðin á YouTube sýna svo ekki verður um villst að viðfangsefnið á mikið erindi til almennings, en myndina má finna í heild sinni á YouTube undir titlinum „EFTIR KLUKKAN SEX“.

Hægt er að horfa á myndina í heild sinni hér að neðan: