Byko
Byko

Mannlíf

Suðurnesjafólk í sviðsljósinu á Íslensku tónlistarverðlaununum
Fimmtudagur 19. mars 2026 kl. 17:58

Suðurnesjafólk í sviðsljósinu á Íslensku tónlistarverðlaununum

Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent með viðhöfn í Hörpu í gærkvöldi, miðvikudaginn 18. mars. Hátíðin er uppskeruhátíð tónlistargeirans á Íslandi og var Suðurnesjafólk áberandi meðal verðlaunahafa að þessu sinni, en þau Sævar Jóhannsson og hljómsveitin Of Monsters and Men hrepptu nokkur af eftirsóttustu verðlaunum kvöldsins.

Sævar Jóhannsson með tvöfaldan sigur

Tónlistarmaðurinn Sævar Jóhannsson átti góðu gengi að fagna á hátíðinni. Plata hans, Quiet Presence, var valin plata ársins í flokknum „önnur tónlist“. Sævar birti glaðbeittar myndir af sér í Hörpu eftir sigurinn og sagðist hreinlega ekki hafa getað hætt að brosa yfir viðurkenningunni.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Sævar var þó ekki hættur því hann er einnig hluti af sviðslistahópnum Óði, sem hlaut verðlaun sem flytjandi ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar. „Je minn hérna. Við unnum flytjanda ársins!“ sagði í tilkynningu frá hópnum eftir að úrslitin lágu fyrir.

Of Monsters and Men með tvenn verðlaun

Hljómsveitin Of Monsters and Men, sem á sínar rætur í Garðinum og Keflavík, heldur áfram að festa sig í sessi sem ein stærsta sveit landsins. Þau fóru heim með tvenn verðlaun í flokki rokktónlistar:

  • Plata ársins: All is Love and Pain in the Mouse Parade

  • Lag ársins: Ordinary Creature

Um verðlaunin

Íslensku tónlistarverðlaunin eru haldin á vegum STEFs og SFH. Markmið hátíðarinnar er að lyfta því sem vel er gert í íslenskri tónlist og kynna fjölbreytileika geirans fyrir landsmönnum.