Reykjaneshöfn selur farþegabátinn Særós
Atvinnu- og hafnarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að selja farþegabátinn Særós GK 235 til fyrirtækisins Arctic Whales ehf. Reykjaneshöfn eignaðist bátinn á uppboði í desember síðastliðnum og var hann auglýstur til sölu í lok janúar á þessu ári.
Nokkur tilboð bárust í bátinn en ráðið ákvað á síðasta fundi sínum að ganga til samninga við Arctic Whales. Halldóri Karli Hermannssyni, sviðsstjóra atvinnu- og hafnarsviðs, hefur verið falið að fylgja málinu eftir og ljúka söluferlinu.




