„Ég er að lifa mínu draumalífi“
Kacper Agnar Kozlowski er sautján ára Njarðvíkingur sem áður horfði á flugvélarnar af jörðu niðri en flýgur nú sjálfur yfir heimabyggðina. Eftir þúsundir klukkustunda við flugherminn heima fór hann einn í loftið eftir aðeins tíu daga í flugnámi. Stefnan er sett á starf atvinnuflugmanns.
„Ég er lentur, ég er kominn út í bíl.“
Þannig heilsar Kacper Agnar Kozlowski þegar blaðamaður nær tali af honum. Hann er nýkominn úr flugi og stutt í næsta verkefni á leiðinni að draumi sem hefur fylgt honum frá barnæsku. Nú er hann sjálfur við stjórnvölinn og fær að sjá kunnuglegar slóðir á Suðurnesjum frá nýju sjónarhorni.
Hann hefur þegar flogið rúma tíu tíma einn, meðal annars yfir Keflavík, Njarðvík, Garð og Sandgerði, og æft snertilendingar á Keflavíkurflugvelli. Fyrir strákinn sem fannst fátt skemmtilegra en að fara með pabba sínum upp á flugvöll er þetta stór breyting.
„Ég er að lifa mínu draumalífi núna,“ segir hann. Að fá að fljúga nánast á hverjum degi sé einmitt það sem hann hafi dreymt um.
Flughandbækur með heimanáminu
Enginn í fjölskyldu Kacpers er flugmaður. Áhuginn kviknaði hjá honum sjálfum en ferðirnar á flugvöllinn með föður hans áttu sinn þátt í að næra hann.
„Pabbi tók mig alltaf upp á flugvöll og ég var að skoða flugvélar. Það var ógeðslega gaman að fara alltaf upp á flugvöll.“
Árið 2018 byrjaði hann að fljúga í flughermi heima. Það sem hófst fyrir framan tölvuskjáinn varð fljótlega að miklu meira en dægradvöl. Kacper sökkti sér í flugið, kynnti sér vélarnar og las flughandbækur samhliða heimanáminu.
Árið 2022, þegar hann var 13 ára, hafði hann varið um fimm þúsund klukkustundum í flughermi. Það vakti athygli fjölmiðla og í kjölfarið bauð Icelandair honum að prófa Boeing 737-flughermi félagsins.
Heima gat hann skipt á milli flugvélategunda en farþegaþotur frá Airbus voru í sérstöku uppáhaldi. Að eigin sögn hefur hann flogið þeim í um þrjú þúsund klukkustundir í herminum.
Nú nýtist þessi áhugi í náminu. Hann segir heimaherminn meðal annars góðan til að æfa verklag og viðbrögð við bilunum. Þar geti hann til dæmis stöðvað hreyfil og velt fyrir sér hvernig hann myndi bregðast við og hvar væri hægt að lenda.
Tilfinningin sé þó önnur þegar komið er í alvöru flugvél. Hreyfingarnar, veðrið og ókyrrðin verði ekki upplifuð með sama hætti heima í herbergi.
Einn við stjórnvölinn eftir tíu daga
Kacper steig stórt skref í sumar þegar hann fór sitt fyrsta einflug í svifflugu. Foreldrar hans komu og fögnuðu áfanganum með honum og hann fékk afhent A-prófsmerki hjá Svifflugfélagi Íslands.
Í haust tók síðan næsti kafli við. Hann hóf verklega flugþjálfun hjá Flugskóla Reykjavíkur 16. október og fór í sitt fyrsta einflug á flugvél 26. október, aðeins tíu dögum síðar.
Þótt reynslan úr sviffluginu og allar stundirnar í herminum hafi komið að gagni var sérstakt að taka á loft með sætið við hliðina á sér autt.
„Þá fattar maður að maður er með mikla ábyrgð í höndunum,“ segir Kacper.
Þarna þurfi að treysta á það sem maður hafi lært og æft. Kennarinn sé ekki lengur við hliðina á manni til að grípa inn í.
„Þetta er bara ógleymanleg tilfinning,“ segir hann um fyrsta einflugið. „Maður þarf bara að treysta á sína kunnáttu.“
Það leynir sér ekki í frásögninni að augnablikið situr í honum. Að stjórna sjálfur flugvél, taka á loft og lenda, er orðið hluti af daglegu lífi hans sautján ára gamals.
Fer þangað sem tækifærin bjóðast
Kacper er í samþættu atvinnuflugmannsnámi hjá Flugskóla Reykjavíkur og stefnir að því að ljúka því á um átján mánuðum. Fram undan eru meðal annars næturflug, blindflug og þjálfun á fjölhreyflavélar.
Lokamarkmiðið er skýrt: að starfa sem flugmaður hjá flugfélagi. Icelandair kemur til greina, en hann er opinn fyrir því að fara utan ef tækifærin bjóðast þar. Hvort framtíðarvinnustaðurinn verði í stjórnklefa Airbus eða Boeing muni einfaldlega ráðast af því hvar hann fær starf.
„Þar sem ég fæ vinnu, þangað fer ég.“
En þótt hugurinn stefni til stærri véla og fjarlægari áfangastaða þarf Kacper ekki að bíða eftir fyrsta starfinu til að finna að draumurinn sé að rætast. Hann finnur það nú þegar, á flugi yfir heimabænum sínum.




