Íþróttir

Sölvi Snær genginn í raðir KR
Sölvi Snær Ásgeirsson er genginn í raðir KR frá Grindavík. Mynd: KR
Miðvikudagur 29. júlí 2026 kl. 10:47

Sölvi Snær genginn í raðir KR

Knattspyrnumaðurinn efnilegi Sölvi Snær Ásgeirsson er genginn í raðir KR frá Grindavík.

Sölvi, sem er 18 ára gamall varnarmaður, skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning við Vesturbæjarfélagið.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Þrátt fyrir ungan aldur á Sölvi Snær þegar að baki dýrmæta reynslu:

  • 25 leiki fyrir meistaraflokk Grindavíkur.

  • 13 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands, þar sem hann hefur skorað 2 mörk.

Í tilkynningu frá KR er Sölvi boðinn velkominn í KR-heimilið á Meistaravöllum, auk þess sem Grindvíkingum er þakkað fyrir fagmannleg vinnubrögð við félagsskiptin.

Eignasalan
Eignasalan