Náðu í þrjú dýrmæt stig í Þorlákshöfn
Njarðvíkingar sóttu dýrmætan 0–1 útisigur gegn Ægi í 16. umferð Lengjudeildar karla í knattspyrnu á GeoSalmo-vellinum í gærkvöldi. Þetta var annar sigur liðsins í röð og sá fjórði í síðustu fimm leikjum.
Njarðvík byrjaði leikinn af miklum krafti og það tók Valdimar Jóhannsson aðeins fjórar mínútur að koma gestunum yfir, 0–1. Það mark reyndist eina mark leiksins en baráttan var mikil á vellinum, eins og spjaldafjöldinn ber vitni um.
Dómari leiksins þurfti oft að grípa til gulu spjaldanna:
Ægir: Atli Rafn Guðbjartsson (44'), Baptiste Gateau (51'), Jordan Adeyemo (90'$) og Bjarki Rúnar Jónínuson (90+4').
Njarðvík: Leandro Fernandes (45+1') og Arnar Helgi Magnússon (72').N
Nýttu mannskapinn vel
Bæði lið hresstu upp á hópinn með mörgum skiptingum í síðari hálfleik. Hjá Njarðvík komu þeir Aron Einarsson (62'), Hrafn Guðmundsson (75'), Björn Aron Björnsson (80') og Haraldur Ágúst Brynjarsson (80') inn á.
Ægismenn reyndu einnig hvað þeir gátu til að jafna og gerðu þrjár skiptingar (46', 58' og 68').
Góð staða fyrir frí
Með sigrinum er Njarðvík komið í 5. sæti deildarinnar með 26 stig þegar sex umferðir eru eftir af hefðbundinni deildarkeppni.
Nú tekur við stutt og kærkomið frí hjá strákunum yfir verslunarmannahelgina. Næsti leikur Njarðvíkur verður heimaleikur gegn Vestra laugardaginn 8. ágúst.






