Bygg
Bygg

Íþróttir

Njarðvík á toppinn eftir öruggan sigur á Selfossi
Úr viðureign Keflavíkur og HK í kvöld. VF/HBB
Föstudagur 30. maí 2025 kl. 23:24

Njarðvík á toppinn eftir öruggan sigur á Selfossi

Sigur hjá Grindavík, stórt tap Keflvíkinga á heimavelli

Njarðvíkingar sýndu glæsilega frammistöðu á Selfossi og unnu sannfærandi 0–4 sigur í Lengjudeild karla í knattspyrnu í kvöld. Oumar Diouck skoraði fyrsta markið strax á 5. mínútu og var svo aftur á ferðinni í upphafi seinni hálfleiks. Á milli þeirra marka hafði Amin Cosic skorað annað mark Njarðvíkur, og Dominik Radic innsiglaði sigurinn með fjórða markinu á 77. mínútu.

Með þessum sigri fer Njarðvík á topp deildarinnar með 10 stig að loknum fjórum umferðum. Selfoss er í 10. sæti, aðeins einu stigi fyrir ofan Fjölni og Leikni sem eru í fallsæti.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Grindavík gjörsigraði Leikni

Grindvíkingar mættu ákveðnir til leiks í Breiðholti og gerðu sér lítið fyrir og skoruðu sex mörk gegn Leikni sem situr á botni Lengjudeildar karla í knattspyrnu. Adam Árni Róbertsson opnaði markareikninginn strax á 2. mínútu og Breki Þór Hermannsson bætti við öðru marki úr vítaspyrnu aðeins fimm mínútum síðar. Breki var aftur á ferðinni undir lok fyrri hálfleiks og tryggði Grindavík þriggja marka forystu í hálfleik.

Kristófer Máni Pálsson, Adam Árni aftur, og Sindri Þór Guðmundsson bættu við mörkum í seinni hálfleik og komust gestirnir í 0-6 áður en Leiknir minnkaði muninn með tveimur mörkum undir lok leiks.

Grindavík er nú komið með sjö stig og lyftir sér upp í sjöunda sæti deildarinnar. Leiknir hefur enn ekki unnið leik í sumar og situr á botninum.

Tap hjá Keflavík

Keflvíkingar áttu lítið í vel skipulagt og agað lið HK sem skoraði tvívegis á fyrstu tuttugu mínútunum í leik liðanna í Lengjudeild karla í Keflavík í kvöld. Jóhann Þór Arnarsson fór fyrir sínum mönnum með tveimur mörkum, fyrst úr vítaspyrnu á 15. mínútu og svo með marki aðeins fjórum mínútum síðar. Tumi Þorvarsson bætti svo við þriðja markinu undir lok leiks og tryggði HK öruggan sigur.

HK fer með sigrinum upp í 6. sæti deildarinnar með 8 stig – aðeins einu stigi á eftir Keflvíkingum sem eru í 5. sæti.