Mikið skorað í neðri deildunum
Það var nóg um að vera í neðri deildum Íslandsmótsins í knattspyrnu um helgina og töluvert var skorað í leikjum Suðurnesjaliðanna. Gengi liðanna var þó misjafnt – allt frá dramatískum sigrum til svekkjandi tapaðra stiga.
Tap hjá Víðismönnum
Víðismenn töpuðu 1:2 fyrir KFA á í 2. deild karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Leikurinn fór fram á sunnudag á Nesfiskvellinum í Garði.
Gestirnir skoruðu tvö mörk í fyrri hálfleik. Fyrst var það Hrafn Guðmundsson á 7. mínútu og svo Heiðar Snær Ragnarsson á 30. mínútu. Dominic Lee Briggs minnkaði svo muninn fyrir Víðismenn á 55. mínútu.
Gengi Víðismanna það sem af er sumri er afleitt. Þeir verma næstneðsta sæti deildarinnar með 8 stig eftir tíu leiki og hafa tapað fjórum af fimm síðustu leikjum sínum.
Víðismenn mæta toppliði Ægis á útivelli á föstudag.
Þróttur með jafntefli fyrir austan
Þróttur V. og Höttur/Huginn gerður 2:2 jafntefli þegar liðin mættust á Fellavelli í 2. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Höttur/Huginn er á botni deildarinnar með 6 stig.
Rúnar Ingi Eysteinsson kom Vogamönnum yfir á 37. mínútu en heimamenn jöfnuðu og komust yfir á þriggja mínútna kafla í síðari hálfleik. Danilo Milenkovic skoraði jöfnunarmarkið á 74. mínútu og Stefán Ómar Magnússon kom heimamönnum yfir á 77. mínútu. Það var svo Hilmar Starri Hilmarsson sem bjargaði stigi fyrir Þrótt V. með marki á 92. mínútu.
Þróttur V. er í 2. sæti deildarinnnar með 22 stig, einu stigi á eftir Ægi sem er á toppnum eftir tíu umferðir.
Þróttur V. fær Gróttu í heimsókn á föstudaginn.
Heimasigur í Sandgerði
Reynismenn fóru með sigur af hólmi þegar þeir tóku á móti KF á Bronsvellinum í Sandgerði í 3. deild Íslandsmótsins knattspyrnu.
Sigurmark Reynis kom á þriðju mínútu uppbótartíma þegar Leonard Adam Zmarzlik skoraði.
Reynir er í 4. sæti deildarinnar með 17 stig. Augnablik er á toppnum með 24 stig. Reynismenn hafa unnið þrjá af síðustu fimm leikjum sínum.
Reynir fer til Grenivíkur á laugardaginn og mætir þar Magna.
Hafnir með sex mörk og Ísak gerði þrennu
Ísak John Ævarsson var með þrennu í 6:3 sigri Hafna á KFS í 4. deild Íslandsmótsins í knattspyru. Leikurinn fór fram í Nettó-höllinni í Reykjanesbæ um helgina.
Ísak John Ævarsson skoraði fyrsta markið á 4 mínútu og bætti við öðru á 45. mínútu. Þrennuna fullkomnaði hann á 81. mínútu en áður en það gerðist hafði Bessi Jóhannsson skorað fjórða mark Hafna. Bergsveinn Andri Halldórsson skoraði svo sjötta markið á 88. mínútu.
Mörk KFS komu á 47., 66. og 75. mínútu. Þau skoruðu Hallgrímur Þórðarson, Þórður Örn Gunnarsson og Eyþór Daði Kjartansson.
Þessi glæsti sigur Hafna er hins vegar aðeins annar sigurleikur liðsins í sumar. Hafnir hafa leikið átta leiki og tapar sex þeirra og unnið tvo sigra. Liðið er í næstneðsta sæti 4. deildar með 6 stig.
Næsti leikur Hafna er á föstudag gegn Hamri í Hveragerði.
Jakub Cukrowski með tvö í jafntefli RB
RB og Spyrnir gerðu 3:3 jafntefli 5. deild Íslandsmótsins á Fellavelli á laugardaginn. Gerald Breki Einarsson skoraði eitt marka RB og Jakub Cukrowski tvö.
RB lék einum manni færri mest allan síðari hálfleik eftir að Sinan Soyturk fékk rautt á 53. mínútu.
RB er í toppsæti B-riðils 5. deildar með 14 stig eftir sjö leiki. RB á næsta leik gegn Stokkseyri á útivelli nk. laugardag.