Bilakjarninn
Bilakjarninn

Íþróttir

Erna og Þorsteinn best í meistaramóti Púttklúbbsins
Stór hluti keppenda í meistaramóti Púttklúbbsins á Mánaflöt. VF/pket
Laugardagur 28. júní 2025 kl. 06:05

Erna og Þorsteinn best í meistaramóti Púttklúbbsins

Þrjátíu púttarar í Púttklúbbi Suðurnesja mættu á árlegt meistaramót klúbbsins sem haldið var á Mánaflöt í Keflavík í síðustu viku.

Mótið stóð yfir í þrjá daga og leiknar voru 36 holur á dag. Tilþrif voru skemmtileg og ljóst að margir eru orðnir flinkir með pútterana.

Hjónin Erna og Þorsteinn Geirharðsson sigruðu en leikið var í kvenna- og karlaflokki. Verðlaunaafhending var að loknu mótinu á Nesvöllum en styrktaraðili mótsins var Landsbankinn.

Bílakjarninn
Bílakjarninn