Íþróttir

Grindvíkingar guldu afhroð í Breiðholtinu á móti ÍR
Föstudagur 27. júní 2025 kl. 21:09

Grindvíkingar guldu afhroð í Breiðholtinu á móti ÍR

Grindvíkingar gerðu ekki góða ferð í Breiðholtið í kvöld en þá mættu þeir toppliði Lengjudeildarinnar til þessa, ÍR. Njarðvík komst í efsta sætið í gær með sigrinum á Keflavík og vonuðust auðvitað eftir góðum úrslitum nágranna sinna en það var aldrei í kortunum og stórtap Grindavíkur staðreynd, 6-1.

Staðan var reyndar bara 1-0 í hálfleik og stíflan brast virkilega á 66. mínútu en á fimm mínútna kafla komu þrjú mörk en annað markið hafði komið á 55. mínútu. Staðan orðin 5-0 á 71. mínútu. Adam Árni Róbertsson minnkaði muninn á 80. mínútu en ÍR bætti strax við sínu sjötta marki og lokatölur 6-1.

Bílakjarninn
Bílakjarninn