Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Íþróttir

Logi ætlar að ljúka ferlinum í LJónagryfjunni
Logi og Kristín Örlygsdóttir, formaður körfuknattleiksdeildar UMFN, takast í hendur að lokinni undirskrift. Mynd af vef UMFN
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
fimmtudaginn 18. ágúst 2022 kl. 09:31

Logi ætlar að ljúka ferlinum í LJónagryfjunni

Logi Gunnarsson, fyrirliði Njarðvíkinga, verður áfram í herbúðum liðsins næstu tvö árin. Samningur var innsiglaður í Ljónagryfjunni í gær þar sem Logi hóf körfuboltaferil sinn í meistaraflokki fyrir 25 árum. Líklegt verður að teljast að Logi loki hringnum í grænu treyjunni þegar þessum samningi lýkur en bakvörðurinn verður 41 árs núna í september.

„Það er eitthvað sem ég hafði alltaf séð fyrir mér að gera, klára ferilinn á mínum heimaslóðum. Það gerir það enn skemmtilegra að vera í góðu liði sem ætlar sér að berjast um alla titla. Það er svo ákveðin rómantík að fá að fylgja Ljónagryfjunni þennan síðasta spöl sem er framundan,“ sagði Logi í samtali við heimasíðu UMFN. Logi lék um 22 mínútur í leik á síðasta tímabili þar sem hann skilaði 9,4 stigum í leik.

Public deli
Public deli

Logi var viðmælandi Suður með sjó fyrir skemmstu og má sjá þáttinn í spilaranum hér að neðan.