Jóhanna Ýr öflug á haustmóti
Fimleikakonan Jóhanna Ýr Óladóttir náði góðum árangri á haustmóti í áhaldafimleikum í húsakynnum Gerplu í Kópavogi en hún keppti í frjálsum æfingum.
Jóhanna var heldur betur í stuði og nældi sér í silfur á stökki. Hún er að koma úr langvarandi meiðslum eftir að hún sleit hásin fyrir um ári síðan. Hún kom til baka ennþá sterkari, keppti á öllum áhöldum og með sýndi nýjar æfingar á tvíslá og jafnvægisslá.






