Sporthúsið
Sporthúsið

Íþróttir

Guðmundur Leo stóð sig vel á EM
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 9. desember 2025 kl. 06:32

Guðmundur Leo stóð sig vel á EM

Sundmaðurinn Guðmundur Leo Rafnsson úr ÍRB hefur nú lokið keppni á EM 25 sem fram fór í Lublin í Póllandi 2.-7. desember. Guðmundur keppti í fjórum greinum á mótinu, 50, 100 og 200m baksundi, 100m skriðsundi og einu boðsundi. 

Bestum árangri náði hann í sinni bestu grein 200m baksundi þar sem hann hafnað í 25. sæti. 

Að sögn Steindórs Gunnarssonar, sundþjálfara hefur tímabilið hefur verið mjög langt hjá Guðmundi því hann hefur æft og keppt nánast samfellt frá því júlí 2024 með eingöngu örfáum frídögum. 

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Dagskráin hjá honum hefur verið mjög þétt á þessu tímabili. Smáþjóðaleikar í lok maí, EM 23 í lok júní, HM 50 í lok júlí, World Cup í lok október, Íslandsmótið í byrjun nóvember og svo EM 25 núna í desember. Þvílík törn hjá þessum sundkappa þar sem hann hefur staðið sig mjög vel.