Guðmundur Leo með gullverðlaun á smáþjóðaleikunum
Guðmundur Leo Rafnsson vann til gullverðlauna í 200 m baksundi á fyrsta degi Smáþjóðaleikana í Andorra í gær. Guðmundur synti mjög vel og sigraði með talsverðum yfirburðum eða um fjórum sekúndum á undan næsta manni. Hann synti jafnframt fyrsta sprett í 4 x100m skriðsundi karla sem stórbætti gildandi Íslandsmet í greininni þegar þeir unnu til silfurverðlauna, hársbreidd frá gullinu.
Þetta var langur dagur hjá Guðmundi Leo sem endaði daginn með því að fara lyfjapróf en hann sagðist vera afar sáttur með árangurinn.