Íþróttir

Góðir útisigrar hjá Njarðvík og Keflavík
Dwayne Lautier-Ogunleye átti sannkallaðan stórleik fyrir UMFN.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 7. mars 2026 kl. 10:09

Góðir útisigrar hjá Njarðvík og Keflavík

Njarðvíkingar og Keflvíkingar unnu góða útisigra í Bónus deild karla í körfubolta í gærkvöldi. Njarðvíkingar eru í harðri baráttu um að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni og eru jafnir í 8.-9. sæti með Álftanesi sem tapaði fyrir Keflavík sem er öruggt í úrslitakeppnina.

Dwayne Lautier-Ogunleye átti sannkallaðan stórleik þegar Njarðvík vann Ármann á útivelli 87-104. Dwayne gerði sér lítið fyrir og skoraði hér um bil annað hvert stig Njarðvíkinga eða 48 stig af 104. Veigar Páll Alexandersson skoraði 19 stig.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Ármann-Njarðvík 87-104 (26-26, 20-29, 17-22, 24-27)

Ármann: Daniel Love 25/7 fráköst, Ingvi Þór Guðmundsson 18/8 fráköst/6 stoðsendingar, Bragi Guðmundsson 11, Marek Dolezaj 10, Arnaldur Grímsson 10, Zarko Jukic 8/6 fráköst, Brandon Averette 3, Cedrick Taylor Bowen 2, Jakob Leifur Kristbjarnarson 0, Alfonso Birgir Gomez Söruson 0, Kári Kaldal 0, Jóel Fannar Jónsson 0.

Njarðvík: Dwayne Lautier-Ogunleye 48/4 fráköst/6 stoðsendingar, Veigar Páll Alexandersson 19/4 fráköst, Dominykas Milka 14/15 fráköst/8 stoðsendingar, Luwane Pipkins 14/6 fráköst, Sven Smajlagic 3/4 fráköst, Sigurður Magnússon 2, Snjólfur Marel Stefánsson 2/6 fráköst, Brynjar Kári Gunnarsson 2, Almar Orri Jónsson 0, Guðmundur Aron Jóhannesson 0, Viktor Máni Ólafsson 0, Kristófer Mikael Hearn 0.

Keflavík vann tíu sigur á Álftanesi 96-106 í nokkuð jöfnum leik en þó. var bítlabæjarliðið með forystu megið af tímanum. Egor Koulechov var með 25 stig og tók 9 fráköst í liði Keflavíkur.

Álftanes-Keflavík 96-106 (20-17, 16-28, 33-39, 27-22)

Álftanes: Justin James 31/9 fráköst, David Okeke 21/13 fráköst, Dúi Þór Jónsson 21/7 stoðsendingar, Sigurður Pétursson 9/7 stolnir, Rati Andronikashvili 7, Hilmir Arnarson 5/4 fráköst, Ragnar Ágúst Nathanaelsson 2/5 fráköst, Colin Júlíus Lewis 0, Árni Dagur Kristjánsson 0, Duncan Tindur Guðnason 0, Ingimundur Orri Jóhannsson 0.

Keflavík: Egor Koulechov 25/9 fráköst/6 stoðsendingar, Craig Edward Moller 19/6 fráköst, Mirza Bulic 18/10 fráköst, Hilmar Pétursson 18/9 fráköst, Jaka Brodnik 14/7 fráköst, Ólafur Björn Gunnlaugsson 7, Halldór Garðar Hermannsson 5/10 stoðsendingar, Eyþór Lár Bárðarson 0, Frosti Sigurðarson 0, Jakob Máni Magnússon 0, Nikola Orelj 0, Daniel Eric Ottesen Clarke 0.

Dómarar: Jóhannes Páll Friðriksson, Gunnlaugur Briem, Bjarni Rúnar Lárusson

Áhorfendur: 241