Bygg Asparlaut
Bygg Asparlaut

Fréttir

Guðni Erlendsson ráðinn framkvæmdastjóri ÍRB
Laugardagur 7. mars 2026 kl. 05:32

Guðni Erlendsson ráðinn framkvæmdastjóri ÍRB

Stjórn Íþróttabandalags Reykjanesbæjar hefur ráðið Guðna Erlendsson sem framkvæmdastjóra ÍRB og mun hefja störf síðar í mars. Guðni er menntaður íþróttafræðingur og hefur lokið mastersnámi í mannauðsstjórnun og starfaði síðast sem mannauðsstjóri Samkaupa. Guðni hefur langa reynslu af íþróttastarfi bæði sem leikmaður og þjálfari.

Íþróttabandalag Reykjanesbæjar (ÍRB) var stofnað 29. maí 1996 og verður því 30 ára síðar á árinu. ÍRB er héraðssamband íþróttafélaga í Reykjanesbæ og vinnur að því að bæta íþróttastarf bæjarfélagsins og um leið annast samstarf fyrir hönd aðildarfélaganna við bæjarstjórn og aðra opinbera aðila.

ÍRB hefur þann tilgang að efla íþróttaiðkun meðal bæjarbúa og styðja við öll aðildarfélögin í Reykjanesbæ sem eru nú að nálgast hátt í tuttugu talsins. ÍRB hefur lengi haft það á stefnuskránni að ráða framkvæmdastjóra til starfa sem er nú loks orðið að veruleika og erum við mjög ánægð með að fá Guðna til liðs við okkur segir Rúnar V. Arnarson formaður ÍRB.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk