Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Gunnlaugur leiðir Miðflokkinn í Reykjanesbæ
Laugardagur 7. mars 2026 kl. 10:19

Gunnlaugur leiðir Miðflokkinn í Reykjanesbæ

Gunnlaugur Kárason, tæplega fimmtugur viðskiptafræðingur og kennari, verður oddviti Miðflokksins í Reykjanesbæ fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. 

Þetta var staðfest á stjórnarfundi Miðflokksins í Reykjanesbæ í vikunni og formlega tilkynnt af Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni flokksins, á fjölmennum borgarafundi á fimmtudagskvöld, þar sem alþingismennirnir Snorri Másson og Karl Gauti Hjaltason voru einnig frummælendur.

Gunnlaugur er Suðurnesjamaður í gegn, fæddur á sjúkrahúsinu í Keflavík 13.júlí 1976. „Ég er kvæntur Rakel Ósk Eiríksdóttur framhaldsskólakennara við Fjölbrautaskóla Suðurnesja.  Við eigum saman fjórar frábærar dætur á aldrinum 16-23 ára. Ég starfaði á mínu fyrstu árum sem kennari og stjórnandi við grunnskóla í Reykjanesbæ og færði mig svo í atvinnulífið og varði sex árum í bankakerfinu og tíu árum í orkubransanum og í dag rek ég mitt eigið fjármála og rekstrarfyrirtæki ásamt ýmsu öðru,“ segir Gunnlaugur.  

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Hann hefur reynslu úr bæjarmálunum, var varabæjarfulltrúi og hefur sinnt nefndar- og stjórnarstörfum fyrir Reykjanesbæ. Þá var hann sviðstjóri fjármálasviðs HS Veitna í níu ár. Hann hefur einnig komið að setu í stjórnum, bæði fimleikafélags Keflavíkur og knattspyrnudeildar Keflavíkur.  

„Ég brenn fyrir því að bærinn minn sé fyrirmynd sveitarfélaga á Íslandi þegar kemur að búsetu. Við eigum að vera stolt af því sem bærinn okkar hefur uppá að bjóða. Við viljum að skólarnir okkar séu framúrskarandi og að íþróttafélögin séu með besta forvarnarstarf sem völ er á og ekki skemmir heldur að Keflavík og Njarðvík sé í fremstu röðum með sína meistaraflokka,“ bætir hann við.

Miðflokkurinn í Reykjanesbæ hefur tryggt sér kosningaskrifstofu við Hafnargötu 60, sem opnar á næstu dögum og þá er einnig stutt í að framboðslisti flokksins verði kynntur í heild sinni. „Það er mikill hugur í okkur og ég finn að mikill byr er með Miðflokknum hér í bænum. Það kemur kannski ekki á óvart í ljósi þess að Miðflokkurinn er að mælast stærstur í Suðurkjördæmi og virðist í sókn um allt land. Fólk vill alvöru breytingar og skýrari línur í pólitíkinni,“ segir Gunnlaugur ennfremur.