Krambúðinn 4-7 sept
Krambúðinn 4-7 sept

Íþróttir

Fjóla Íslandsmeistari unglinga í golfi
Fimmtudagur 4. september 2025 kl. 06:30

Fjóla Íslandsmeistari unglinga í golfi

Fjóla Margrét Viðarsdóttir, Golfklúbbi Suðurnesja varð Íslandsmeistari unglinga í stúlknaflokki 17-18 ára en leikið var á Þorláksvelli í Þorlákshöfn 15.-17. ágúst. Fjóla lék sitt besta golf í sumar og endaði á tveimur höggum undir pari eftir þrjá hringi sem hún lék á 73-68-73.

Hún hafði betur með fjórum höggum í spennandi keppni við Pamelu Ósk Hjaltadóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar, sem sótti að Fjólu í lokahringnum en Suðurnesjastelpan gaf ekkert eftir á lokasprettinum og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25