Íþróttir

Daníel Leó genginn til liðs við Blackpool
Daníel Leó lék yfir 100 leiki með Álasund. Mynd af vef Blackpool FC.
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
mánudaginn 5. október 2020 kl. 23:43

Daníel Leó genginn til liðs við Blackpool

Grindvíkingurinn Daníel Leó Grétarsson hefur sagt skilið við norska knattspyrnuliðið Aalesunds FK og gert tveggja ára samning við enska knattspyrnufélagið Blackpool FC sem leikur í ensku C-deildinni.

Daníel, sem er uppalinn Grindvíkingur, hefur verið í herbúðum Álasunds síðan 2015 og leikið yfir 100 leiki með liðinu á þessum fimm keppnistímabilum. Hann lék sinn fyrsta A-landsleik í byrjun þessa árs þegar Ísland sigraði Kanada 1:0 og að auki hefur Daníel leikið sex leiki með U21 og tíu leiki með U19 landsliðum Íslands.

Neil Critchley, yfirþjálfari Blackpool, segir að félagið hafi lagt sig fram við að finna rétta leikmanninn og sú reynsla sem fylgi Grindvíkingnum komi til með að styrkja lið Blackpool en Daníel er öflugur varnarmaður og Blackpool er sem stendur í fjórða neðsta sæti deildarinnar. „Hann kemur með reynslu úr keppni með félagsliðum og landsliðum. Hann lítur á komu sína til Englands og að ganga í raðir Blackpool sem næsta skref á ferli sínum,“ segir Critchley á vef Blackpool FC. „Okkur hlakkar til að vinna með honum, hjálpa honum að falla inn í hópinn og bjóðum hann velkominn í Blackpool-fjölskylduna,“ er enn fremur haft eftir Neil Critchley.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Öll fréttin á vef Blackpool FC