Íþróttir

Blue Lagoon Challenge fór fram um síðustu helgi
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
miðvikudaginn 15. júní 2022 kl. 10:50

Blue Lagoon Challenge fór fram um síðustu helgi

Hjólreiðamótið Blue Lagoon Challenge var haldið í 26. sinn síðastliðinn laugardag en það er Hjólreiðafélag Reykjavíkur sem heldur mótið. Hátt í 500 hjólreiðamenn tóku þátt en Bláa lónsþrautin er eitt vinsælasta fjallahjólamót ársins. Bláa lónið er aðalstyrktaraðili þess og bauð öllum þátttakendum upp á kjötsúpu og í lónið að móti loknu auk þess sem allir keppnendur voru verðlaunaðir með húðvörum úr SPA-línu Bláa lónsins

„Stemmningin var einstök í mótinu og gleðin skein úr hverju andliti að keppni lokinni. Mjög breiður hópur tók þátt en mismunandi vegalengdir voru í boði; 60 km leið, 30 km leið og nú í fyrsta sinn var boðið upp á sérstaka rafhjólakeppni. Hjólreiðafólk af öllum getustigum, keppnishjólreiðafólk, vinnustaðahópar, áhugafólk og allt þar á milli tóku þátt. Að lokum sameinuðumst allir í Bláa lóninu þar sem átökin liðu úr keppendum undir kvöldsólinni. Það er áskorun, en ekki síður afrek, að ljúka keppni en 60 kílómetraleiðin liggur frá Völlunum í Hafnarfirði og að Svartsengi í Grindavík. 30 kílómetra leiðin hófst við Krýsuvíkurkirkju og endaði á sama stað, við Bláa lónið. Markmiðin eru misjöfn hjá keppendum, sumir keppast um fyrsta til þriðja sæti en einnig eru margir að keppa við sjálfan sig, eru að hjóla vegalengdina í fyrsta sinn eða keppa við eigin tíma frá því áður“, Segir Jón Gunnar Kristinsson, mótsstjóri Bláa lónsþrautarinnar.

Leiðin er malbikuð að hluta, en einnig fer hún um grófan malarveg, um moldarslóða og sand. Heildarhækkun á leiðnni, ef farið er 60 km leið, er um 600 metrar og þar munar mest um Ísólfskálabrekkuna. Þegar þangað er komið er um 40 km lokið og því farið að síga í hjá allflestum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Í fyrsta sæti, í 60 km veglengd, var Ingvar Ómarsson á tímanum 1:47:46 og í kvennaflokki var það Björg Hákonardóttir sem bar sigur af hólmi á tímanum 2:18:34.

Í 30 km vegalengdinni var það Blær Örn Ásgeirsson sem sigraði í karlaflokki á tímanum 1:52:05 og Pálína Þorsteinsdóttir sem sigraði í kvennaflokki á tímanum 01:48:31

Í rafhjólakeppninni voru það Dagný Pétursdóttir á tímanum 02:19:41 og Atli Már Markússon á tímanum 02:20:45 sem sigruðu í 60 km flokki og Gunnar Erling Vagnsson á tímanum 01:20:07 og Hanna Steinunn Steingrímsdóttir á tímanum 01:21:52 sem sigruðu í 30 km flokki.

„Brautarmetin hafa fallið ár frá ári en veður og vindar hafa þó töluverð áhrif á tímann. Þó að brautarmet hafi ekki verið slegið í ár er ljóst að hjólreiðafólk á Íslandi hefur bætt sig töluvert síðustu ár enda hefur orðið mikil vakning í íþróttinni á sama tíma og allur búnaður hefur þróast. Þá hefur uppbygging barna- og unglingastarfs Hjólreiðafélags Reykjavíkur eflst til muna en ágóðinn af þessari keppni fer, á hverju ári, óskiptur til þess uppbyggingarstarfs. Við erum því afar stolt og glöð að geta haldið jafn metnaðarfullt og stórt mót sem raun ber vitni og spilar þar frábært samstarf við Bláa Lónið stærstu rulluna“, sagði Jón Gunnar, mótsstjóri Bláa lónsþrautarinnar að lokum.


Myndir úr mótinu má sjá í myndsafni neðst á síðunni.

Blue Lagoon Challenge 2022