Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Viðurkenningar til leikskólanna Króks og Holts
Föstudagur 11. desember 2015 kl. 15:55

Viðurkenningar til leikskólanna Króks og Holts

Heilsuleikskólinn Krókur í Grindavík og Leikskólinn Holt í Reykjanesbæ voru í gær meðal tíu stofnana sem fengu gæðaviðurkenningu Erasmus+ menntaáætlunar Evrópusambandsins. Viðurkenningarnar voru veittar við hátíðlega athöfn í Ásmundarsafni. Heilsuleikskólinn Krókur hlaut viðurkenningu fyrir verkefið Hvað finnum við undir fótum okkar? og leikskólinn Holt fyrir verkefnið Lesum heiminn. 

Verkefnin sem hlutu viðurkenningu í gær eiga það sammerkt að hafa sýnt fram á nýsköpun og nýbreytni í menntun, stuðlað að þátttöku fjölbreyttra hagsmunahópa í alþjóðasamstarfi og haft áhrif á skólastarf einstakra stofnana sem og víðtækari áhrif í skólasamfélaginu.

Public deli
Public deli

Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, veitti viðurkenningarnar sem eru í formi myndverka sem hönnuð voru af 15 nemendum á öðru ári í teiknideild í Myndlistarskóla Reykjavíkur.

Erasmus+, mennta- og æskulýðsáætlun ESB, er stærsta menntaáætlun heims. Erasmus+ hóf göngu sína 2014 og stendur til 2020. Rannís hýsir menntahluta Landskrifstofu Erasmus+ á Íslandi og úthlutar árlega tæplega 800 milljónum úr áætluninni til verkefna á því sviði. Markmið áætlunarinnar eru meðal annars að styðja verkefni sem miða að því að efla grunnfærni einstaklinga, svo sem læsi og stærðfræði, ýta undir sköpunargáfu og frumkvöðlakennslu, vinna gegn brotthvarfi, styðja við aðlögun innflytjenda, innleiða upplýsingatækni í menntun, efla starfsmenntun og almennt auka gæði í menntun á öllum skólastigum og í atvinnulífi.

Leikskólinn Holt í Reykjanesbæ hlaut viðurkenningum fyrir verkefnið Lesum heiminn og heilsuleikskólinn Krókur í Grindavík hlaut verðlaun fyrir verkefnið Hvað er undir fótum okkar?