Flugger
Flugger

Fréttir

Vatnsból Sveitarfélagsins Voga við Stapa öruggt
Sunnudagur 3. desember 2023 kl. 06:33

Vatnsból Sveitarfélagsins Voga við Stapa öruggt

Markmið neyðarstjórnar hjá Sveitarfélaginu Vogum er að miðla á sem bestan hátt upplýsingum til bæjarbúa. „Gott upplýsingaflæði er lykillinn að góðu samstarfi milli bæjarbúa og bæjaryfirvalda,“ segir í tilkynningu þar sem bæjarbúar eru jafnframt hvattir til að koma með ábendingar sé eitthvað óljóst.

„Að því tilefni þá viljum við upplýsa Vogabúa um að vatnsból okkar Vogabúa er staðsett við Stapann, rétt við Stofnfisk. Staðsetning vatnsbólsins gefur okkur Vogabúum gott öryggi hvað neysluvatn varðar þrátt fyrir þær jarðhræringar sem standa nú yfir. Þetta vatnsból þjónustar bara okkur Vogabúa og teljum við því ekki stafa hætta ef allt fer á versta veg. Jafnframt teljum við okkur í ágætum málum hvað varðar afhendingaröryggi á rafmagni, en fari svo að rafmagnið detti út þá mun vararaflstöð taka við að dæla vatni úr vatnsbólinu,“ segir í tilkynningu neyðarstjórnarinnar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024