Fréttir

Slasaður sjómaður sóttur út á haf
Thelma Hrund Hermannsdóttir
Thelma Hrund Hermannsdóttir skrifar
þriðjudaginn 5. júlí 2022 kl. 18:07

Slasaður sjómaður sóttur út á haf

Fyrr dag sótti þyrla Landhelgisgæslunnar slasaðan skipverja frá erlendu skipi sem var statt um 100 sjómílum suðvestur af Reykjanesi. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst aðstoðarbeiðni frá skipinu rétt fyrir hádegi. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á vettvang og kom hún að skipinu um 70 sjómílur suðvestur af Reykjanesi. Sigmaður þyrlunnar seig um borð í skipið og mat ástand sjúklingsins og undirbjó fyrir hífingu. Þyrlan lenti á Reykjavíkurflugvelli um klukkan 14:30 og sjúklingurinn fluttur þaðan með sjúkrabíl á slysadeild.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024